Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1952, Page 8

Náttúrufræðingurinn - 1952, Page 8
2 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN því fylgt í ritgerð þessari. Af því leiðir, að engar skeljar ber að telja íslenzkar, nema þær finnist innan nefndra dýptarmarka. I. Gerð skeljanna og liínaðarhættir Flestar tegundir samlokna liafa um sig yzt 2 kalkhvolf, er koma saman á röndunum. Þau eru klædd utan með þunnu, hornkenndu hýði (periostracim, epidermis), sem stundum fellur af að einhverju eða öllu leyti með aldrinum. Innra borð þessara kalklivolfa, sem al- mennt ganga undir nafninu skeljar, er oftast hvítgljáandi eða perlu- móðurgljáandi. Meginefnið í skelj- unum er kolsúrt kalk, er smitað Iiefur úr möttli dýrsins. En mött- ullinn er 2 allþykkar blökur, er hanga niður sín hvoru megin inn- anskeljar frá bakrönd dýrsins. Möttulfaldarnir eru vaxnir saman á einum stað eða víðar, eða þeir eru festir við skelrendurnar. Mynd- ast við það hol fyrir líffærin, mött- ulholið. Niður úr möttulliolinu er op fyrir fótinn, en sá líkamshluti er dýrinu venjulega mjög nytsam- ur .Fóturinn er mismunandi lagað vöðvaþykkildi, sem dýrið, er það opnar samlokurnar, getur skotið út úr skelinni og ýtt sér áfram með á botni sjávarins. Til eru tegund- ir, sem geta synt allhratt með því að slá skeljunum snöggt sáman (hörpudiskur). Sumar tegundirnar hafa engan fót. Aftur úr möttul- holinu eru 2 op. Um það neðra streymir vatnið í holið og flytur dýrinu súrefni og annað það, er h'kami þess þarfnast til viðhalds. Um efra opið streymir vatnið út og tekur með sér úrgangsefni líkam- ans. Stundum eru op þessi á endanum á skemmri eða lengri pípum (möttulpípur). Fæðan er aðallega smásæir þörungar eða botnfall lífrærtna óg ólífrænna efna, sem orðið liafa að eðju (detritus). Önd- unin fer fram með tálknum. Samlokurnar halda sér lokuðum með svó nefrtdum clráttarvöðvum (musculus adductoris). Það eru 2 (sjald- an 1), gránnir vöðvar, sem festir eru á innra borð beggja skeljanna úti við endana ofanvert. Sjást mótin eftir þessa vöðva, þegar búið er i Myndin sýnir innra borð hægri skeljar. h: hjör; 1: möttnllína; mb: möttulbug- ur; m: mót eftir dráttarvöðva. (Dan- marks Fauna).

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.