Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1952, Síða 21

Náttúrufræðingurinn - 1952, Síða 21
ÍSLENZKAR SÆSKELJAR 15 tegundir á 101—200 m, 10 tegundir á 201—300 m og 3 tegundir á 301—400 m lágmarksdýpi. Um lágmarksdýpi hjá 9 tegundum er ekki vitað. Á meira en 400 m dýpi hafa fundizt tegundir úr öllum flokk- um, alls 26. IX. Hagnýt þýðing f sumum nágrannalöndum okkar og víðar þykja vissar tegundir skeldýra hin mesta kóngafæða, eins og t. d. ostran (Ostrea edulis). En íslendingar hafa aldrei öðlazt þann smekk, að geta hagnýtt sér skel- fisk til matar. Að vísu hafa þeir ekki ostrur, en þeir hafa aðar tegund- ir, sem standa þeim ekki mikið að baki að gæðum. Ég á þar fyrst og fremst við krœklinginn. Einnig er það önnur tegund, sem hægt væri að afla sér hér í stórum stíl. Það er kúfskelin. Kúffiskurinn er að vísu ekki eins ljúffengur og kræklingur. En varla trúi ég öðru en að hægt væri að matreiða hann á viðunandi hátt, ef vilji væri fyrir hendi til hagnýtingar. Skelfiskur er kjarngóð fæða og auðugur af bætiefnum. Á hinn bóginn notuðu íslendingar um langan aldur (og nota á stöku stað enn í dag) krækling og kúffisk sem milliliði til mataröflunar, þ. e. til beitu, og þótti gefast vel. Þá er og alkunna, að við erum búnir að koma auga á það, hvernig við eigum að hagnýta okkur skeljakalkið í stórum stíl. X. Skeldýr sem íiskafæða Sumar tegundir fiska nota sér skeldýr sem fæðu, en þó oftar en hitt sem aukabita. Aðallega eru það 2 tegundir hér við land, sem gæða sér á skeldýrum, það er ýsan og steinbíturinn (sumir flatfiskar stöku sinnum). í fjörðum inni, þar sem smáýsan elur aldur sinn að vetrar- lagi, er oft lítið um æti, og lifir hún þá mestmegnis á skeldýrum og sæsníglum. Veturinn 1922 og 1923 rannsakaðaði ég mörg hundruð maga og þarma úr smáýsu, er öfluð var innan til í Eyjafirði. Við þá rannsókn kom bezt í ljós, hve skeldýrin voru mikilsverður liður ætis- ins. Það er einnig annað, er ég tel, að athuganir þessar hafi leitt í ljós, þ. e. mismuninn á magni hinna smærri skeljategunda á nefnd- um slóðum. Að magni til yfirgnæfðu algerlega 3 tegundir í hverri prufu (liver prufa var nokkrir tugir af smáýsu). Þær voru: gljáhnytla (Nucula tenuis), trönusystir (Leda minuta) og pétursskel (Cardium jásciatum). Á síðustu árum hef ég fengið skeljar úr ýsumögum víðs vegar að úr Faxaflóa, og hafa 2 tegundir verið þar alveg yfirgnæf- andi: tígulskel (Spisula solida v. elliptica) og ýsuskel (Ahra prisma-

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.