Náttúrufræðingurinn - 1952, Blaðsíða 44
38
JÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
en í Langadal og Blöndudal var álíka mikið af báðum tegundunum. Greinilegur
munur var á þroskastigi tegundanna, dagana 21.—26. júlí, sem ég var þar á ferð,
voru aldin E. hermafroditum víðast tekin að þroskast, en á E. nigrum voru þá
einungis smávísar.
38. Diapensia lapponica, Fjallsöxl, Skstr. 1950.
39. Plantago juncoides, Búlandsnes, Papey, Eydalir S.-Múl. 1944, Vopnafjörður 1946.
40. Erigeron uniflorus, Fjallsöxl Skstr. 1950, Selland í Fnjóskadal 1951.
41. Gnaphalium silvaticum, allvíða á Vatnsnesi og í Vesturhópi 1949.
II
Á síðari árum hefur allmargt slæðinga borizt til landsins, bæði með grasfræi, fóðri,
einkum hænsnafóðri, og í varningi. Þá hefur og ýmissa eldri slæðinga orðið vart á nýjum
fundarstöðum. Hér er getið x einu lagi þeirra slæðinga, senr ég hef orðið var síðan 3.
útgáfa Flóru íslands kom út. Þriggja hinna nýju slæðinga hef ég að vísu getið áður, og
nokkrir þeirra hafa einnig fundizt af öðrum á þessum árum, þótt ekki sé þess hér getið.
Þær tegundir, sem ekki er getið f Flóru, eru merktar með *. Vafalítið er, að ýmsar þær
tegundir, sem nú eru taldar slæðingar, eldri og yngri, munu ílendast hér, og aðrar
koma hingað að staðaldri í fræi. Er fróðlegt að fylgjast með vexti þeirra og þrifum
eftir því, sem kostur er. Hef ég því bætt við nokkrum athugasemdum um það efni.
Eintök af öllum þeim tegundum, sem hér er getið, eru í grasasafni mínu. Johannes
Lid, konservator 1 Oslo, hefur gert mér þann greiða að cndurskoða ýmsar nafngrein-
ingar mínar og nafngreina sumar tegundirnar.
Gramineae:
1. Phalaris arundinacea var. picta, Akureyri 1950. Hefur slæðzt úr garði, en virðist
dafna ágætlega.
2. Bromus inermis, Sandgræðslan á Rangárvöllum 1947, Hvammstangi 1949. Vöxtur
þess, þar sem því hefur verið sáð í sandgræðslunni, virðist henda til þess, að það
verði góður borgari í íslenzku gróðurríki.
3. B. tectorum, Akureyri 1950. Gat ekki fundið það aftur 1951.
Polygonaceae:
4. Polygonum convolvulus, Hvammstangi 1949, Akureyri 1950. Hef fundið þessa teg-
und á ýmsum stöðum á Akureyri hin síðari ár, fyrst 1945. Hún virðist samt ekki
haldast til lengdar í sama stað, en blómgast þó flest sumur.
5. Fagopyrum sagittatum, Hvammstangi 1949.
Chenopodiaceae:
6. Chenopodium album, Akranes 1945 og 1948, Hvammstangi 1949, Glerárþorp 1950,
Akureyri á ýmsum stöðum. Hér á Akureyri má segja, að þessi slæðingur vaxi að
staðaldri, og ber þroskuð fræ a. m. k. í sumum árum.
7. * C. opulifolium Schrad. Glerárþorp 1950.
8. * C. pratericola Rydb. Akureyri á tveimur stöðum 1950.
9. * Salsola ruthinica Iljin. Gleráreyrar 1950. Engin hinna þriggja síðastnefndu tegunda
fannst aftur 1951. En þær uxu ásamt fleiri slæðingum, þar sem fleygt hafði verið
hænsnafóðri. En C. pratericola einnig í gömlum matjurtagarði.
Cruciferae:
10. Brassica campestris, Nes við Seltjörn 1949, Akureyri 1950.
11. Sinapis aruensis, Króksfjarðarnes NV 1943, Egilsstaðir Héraði Au. 1944, Ægissíða
á Rangárvöllum 1947, Nes við Seltjörn 1949, Akureyri 1950, á nokkrum bæjum á