Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1952, Side 55

Náttúrufræðingurinn - 1952, Side 55
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 47 menntamálaráðherra liðsinni hans í því máli. Það verður ekki of oft endurtekið, að Náttúrufræðingurinn Iiefur þýðingarmiklu menningarhlutverki að gegna, ekki sízt þar sem náttúrufræði- og landafræðimenntun landsmanna er svo forsómuð og vanrækt, að andlegri heilbrigði þjóðarinnar er beinn háski að, ef ekki verður eitthvað úr bætt. Ennþá eru kaupendur Náttúrufræðingsins alltof fáir. Ég efast ekki um, að fjölga má félagsmönnum að mun, ef nú- verandi félagsmenn leggjast allir á eitt um útvegun þeirra. Með þessu hefti Náttúrufræðingsins Iiel'st sú nýbreytni, að því fylgja tvær myndasíður, prentaðar á sérstakan myndapappír, og er ætlunin, að slíkt myndablað fylgi hverju hefti hér eftir. Myndaserían í þessu hefti er upphaf á myndaseríu um íslenzka fugla. Mun dr. Finnur Guðmundsson sjá um þá myndaseríu og skrifa grein um hvern fugl, sem myndir birtast af, en myndirnar verða flestar eftir Björn Björnsson, fynv. kaupmann frá Norðfirði, sem náð liefur langbeztum árangri íslenzkra manna í Ijósmyndun fugla, enda vak- ið athygli erlendis með myndum sínum. Ætlunin er að birta í Náttúrufræðingnum fleiri slíkar seríur náttúrufræðilegs efnis, m. a. seríu jarðfræðilegra mynda, sem undirritaður mun sjá um. Við göngum þess ekki gruflandi, að þessum myndasíðum fylgir talsverður kostnaðarauki, en teljum, að því fé sé vel varið, og von- um, að þessar myndaseríur verði lesendum ritsins til fróðleiks og nokkurs augnayndis. Annars væri fróðlegt að heyra álit kaupenda Náttúrufræðingsins á þessari nýbreytni, og yfirleitt er ég þakklátur hvers kyns óskum og ábendingum kaupenda viðvíkjandi tímarit- inu. S. Þ. i

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.