Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1952, Blaðsíða 29

Náttúrufræðingurinn - 1952, Blaðsíða 29
ÚR DAGBÓK. ÍSLENZKA FÁLKANS 23 sem snertir hann með geysihraða. Með krepptum fótum hef ég ekki getað séð, að fálkinn slái fugla á flugi, en aftur á móti dýr og fugla sitjandi á jörð og vatni. Hef ég oft ltlegið að hrafni eða veiðibjöllu, jDegar fálkar hafa ráðizt að þeim sitjandi, livað Jreir eru snarir að „taka ofan“. Ég vil taka það fram hér, að fálkar virðast nota þessar aðferðir mjög misjafnt, og áberandi rnunur er á leikni Jreirra hjá ein- staklingum við hverja sérstaka aðferð. Sannar Jrað ájrreifanlega spak- rnælið forna: „Hvað ungur nernur, gamall temur." Þegar fálkinn slær stóra fugla á flugi, beitir hann klónum (senni- lega á afturtám). Rennir hann sér Jrá heldur ekki ofan fyrir fuglinn, heldur Jreytist venjulega að Iionum — oft úr tiltölulega lítilli hæð — og snertir hann á línu, sem vísar mjögnálœgt Jreirri stefnu, er fuglinn hefur sjálfur á fluginu. Með aðeins annarri klónni getur hann gert banasár, bæði eftir baki, í vængvöðva, á hálsi eða höfði o. s. frv., svo að t. d. stórar endur missi mátt eða fatist og falli til jarðar. Komi þær þá ekki í vatn, er fálkanum oftast sigurinn vís. Eitt sinn horfði ég á viðureign fálka og stóru grágæsar. Sló fálkinn hana skammt frá mér, svo að dúnninn rauk af henni. Steypti gæsin sér þá í dauðans angist niður á Jökulsá til hliðar við beljandi flaum- inn. Ég sá hana mjög glöggt í sjónauka, þar sem hún skreið inn á milli steina handan við ána og sá greinilega, að blóð seytlaði út ofar- lega aftan á hálsi hennar. í ljósaskiptum kvölds og morgna eru fálkar oftast á veiðum t. d. á veturna. Þá eru rjúpur líka mest á ferli að öðru jöfnu. Leggja fálkar þá leið sína yfir þá staði, þar sem helzt er veiðivon, t. d. meðfram fjallabrúnum, hamraveggjum, skógarhlíðum o. s. frv. Oft eru tveir fálkar (venjulega hjón) saman á veiðum, og er samspil þeirra oft hnitmiðað. Komist rjúpan undan með því að kasta sér niður í stór- vaxinn og þéttan birkiskóg, urðir, að hamraveggjum eða þ. u. 1., steypir annar fálkinn (venjulega sá yngri) sér yfir liana og sezt sem allra næst henni, en við það flýgur hún venjulega upp af ótta við hann. Hinn fálkinn, sem bíður og sveimar hátt uppi, er Jrá viðbúinn, og hefur sá eftirleikur oft skjótan enda. Þá er komið að því að skýra hér frá nokkrum atburðum, sem ég og aðrir hafa verið áhorfendur að og sýna fluglist, hæfni og dirfsku fálkans á veiðunr og ennfremur veiðiaferðir lians, sem reynt hefur verið að skýra að nokkru hér að framan. í skógivaxinni brekku undir 150—200 m háunr klettabeltunr kem- ur rjúpa á flugi og stefnir franr hjá rétt neðan við mig. Eins og ör-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.