Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1952, Page 33

Náttúrufræðingurinn - 1952, Page 33
ÚR DAGBÓK ÍSLENZKA FÁLKANS 27 Ólafs, fram á fálka, sem var að gæða sér á stóru grágæs, er var ný- dauð. Sá hann gæs á flótta nokkru áður undan fálka, og stefndi hún í sömu átt undan grimmilegum árásum fálkans, sem virtist vera að yfirbuga hana. Sýndist Héðni gæsin vera orðin blóðug að framan, þegar hún flaug hjá honum. Eftirfarandi frásögn sannar það, að ekki eru allar ferðir til fjár. Um 1924 var Egill bóndi Sigurðsson á Máná á Tjörnesi ásamt fleir- um við lundaveiðar í Mánáreyjum. Veður var kyrrt, sléttur sjór og voru þeir staddir í bát austan undir Háey. Sjá þeir, hvar fálki kemur eins og örskot fyrir bjargnefið að norðan, grípur þar lunda í klærn- ar rétt við bjargbrúnina og stefnir suður með henni að austan og nálgast þá. Sá Egill glöggt, hvernig lundinn brauzt um í klóm fálk- ans. Þegar fálkinn flaug með bjargbrúninni hátt uppi yfir höfðum þeirra, rak hann skyndilega upp óvænt öskur, eins og hann hefði sár- kennt til, hálfstanzaði í loftinu, eins og honum hefði fatazt flugið, og sleppti lundanum, sem kom svífandi niður án þess almennilega að komast á réttan kjöl. En það undruðust þeir, sem á horfðu, hvað lundinn var fljótur að átta sig, þegar hann kom í sjóinn, því að á sömu stundu var hann kominn á kaf og gusan stóð beint upp í loft- ið. Fálkinn, sem var dökkur, forðaði sér burtu, og taldi Egill það vafalítið ungan fugl. Jafnframt taldi Egill, að lundinn hefði áreiðan- lega náð til að bíta fálkann á óþægilegum stað, og hefði hann þá áreiðanlega ekki dregið af sér. Og bit þeirra, sagði Egill, væru oft framkvæmd af furðulegri snerpu. Hjá Leirhöfn á Sléttu er landslagi þannig háttað, að bærinn stend- ur við ræturnar á brattri fjallshlíð, er snýr móti vestri. Við hlaðvarp- ann liggur grunnt stöðuvatn, sem nær út að sjó. Norðan við eiðið, sem er fremur mjótt, er stór vík. Þar er oft logn og ládeyða, þótt utan við sé úfinn sjór. Mergð fugla safnast oft á þessa vík og umhverfis hana. Sigurður bóndi Kristjánsson, einn af hinum landskunnu Leir- hafnarbræðrum, hefur sagt mér ýmsar sögur af fálkum og veiðiað- ferðum þeirra. Sjálfur er Sigurður mikill veiðimaður og afburða skytta. Fara hér á eftir í fáum orðum nokkrar frásagnir hans. Á víkinni fyrrnefndu hefur Sigurður oftar en einu sinni séð fálka grípa langvíu, sem legið hefur á sjónum, drasla henni á loft og fljúga með hana burtu. Langoftast stinga þær sér undan árásinni, en stund- um eru þær svo sinnulausar og aðframkomnar, að þær virðast enga rænu hafa á því að forða sér. Á sörnu slóðum hefur Sigurður séð

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.