Náttúrufræðingurinn - 1952, Page 9
ÍSLENZKAR SÆSKELJAR
8
að hreinsa skeljarnar. Þegar slaknar á vöðvum þessum, opnast skelj-
arnar með aðstoð hinna svokölluðu tengsla. Eru það e. k. teygju-
bönd úr fjaðurmögnuðu, hornkenndu efni. Tengslin eru ýmist fest
á efri brún aftari bakrandarinnar, úttengsli (ligamentum) eða á lítið
þrep á innri brún, inntengsli (cartilago). Rétt neðan við skeljarnefið
og til beggja hliðar við það innan á bakröndinni eru oft tennur af
mismunandi gerð, hjörin, og falla tennur annarrar samlokunnar inn
í samsvarandi skorur eða holur á hinni, þegar þær eru lokaðar. Með
þessu móti haldast skeljarnar betur í skorðum. Eftir gerð tannanna
eru skeljarnar nefndar jafntenntar (taxodus) og mistenntar (hetero-
Mistennt hjör. 1: nef; 2: út-
tengsli; 3: griptönn; 4: lilið-
artönn (Danmarks Fauna).
dus). Á mistenntum björum eru stundum listalaga tennur (bryggj-
ur) til beggja handa. Þær heita hliðartennur (dens lateralis). Þekk-
ing á gerð hjaranna er mjög mikilsverð við ákvörðun tegundanna.
Þá er það einkenni, sem nefnt er möttulbugur (sinus linae pallia-
lis), einnig mikið notað við sundurliðun tegundanna. Möttulbug-
urinn er mót, er myndast á innra borði skeljanna við afturenda
þeirra inn úr möttullinunni (linea jjallialis), og er lega og stærð
hans breytileg eftir því, um hvaða tegund er að ræða. Möttulbug
hafa aðeins þær tegundir, sem hafa möttulpípur og geta dregið
þær inn í skelina. Samlokurnar eru höfuðlaus dýr og hafa engin
eiginleg munnfæri. Ytri skynjunarfæri eru lítt þroskuð, þó Iiafa
sumar tegundir þeffæri og greinilega sjónfæri. T. d. hafa birðu-
skeljar (Arca) augu á möttulfaldinum. Sæskeljarnar eru ýmist ein-
kynja eða tvíkynja. Meginhluti þeirra er þó einkynja. Hjá tví-
kynja tegundunum þroskast egg og sæði venjulega í einu og sama
líffæri. Meðal íslenzkra, tvíkynja tegunda eru kœnuskeljar (Lyonsia)
undantekning. Algengast er, að dýrin láti frá sér eggin og sæðið í
vatnið, og fer þá eggfrjóvgun fram með líku móti og meðal fiskanna.
Dæmi eru þó til um tegundir, þar sem sæðið kemst inn í egglegið
og fer þá frjóvgun fram innanskeljar. Lirfurnar, sem úr eggjunum
koma, eru undursmáar, ekki lengri en þj 0—% úr mm, og lifa margar