Náttúrufræðingurinn - 1955, Side 4
66
NÁTTÍJRUFRÆÐINGURINN
gerðum, sem enn eru notaðar, og grundvöllur lagður að þekkingu yorri
á eðli jarðskjálfta og innri hluta jarðarinnar, dreifingu jarðskjálfta
um jörðina og orsökum þeirra, að svo miklu leyti, sem þær eru kunn-
ar á vorum dögum.
Á tímabilinu 1910 til 1930 var safnað miklum gögnum með jarð-
skjálftamælingum víðsvegar um jörðina, og almenn þekking jókst
mjög, en á síðastliðnum aldarfjórðungi hefur þróun jarðskjálftafræð-
innar einkum heinzt að aukinni nákvæmni í athugunum og mælingum.
SkdSun visindamanna vorra tíma.
Orsakir jarðskjálfta hljóta að vera margar, en þær eru lítt þekktar.
Víða um jörðina eru miklir fjallgarðar, sem myndazt hafa vegna
l.mynd. Sprengnether jarðskjálftama'lir, eins og sá, sem notaður er í Reykjavík
til að mæla lóðrétta hreyfingu jarðarinnar. — Sprengnether vertical seismograph
as that used in Reykjavík.