Náttúrufræðingurinn - 1955, Side 27
ÖSKUFALL, SVO AÐ SPORRÆKT VAR
89
séð „að stórjakar höfðu af þessu hlaupi farið inn í ölvesárútfall og
rekið allt að Hamraenda fyrir sunnan Hraun í ölvesi“. Hefur hann
þá þetta vor bæði komið í ölfus og verið vel kunnugt um atburði á
Suðurnesjum. Hann getur þess og í þessari viðbótarskýrslu um hlaup-
ið, „að jökullinn, sem fram flaut, sást upp yfir kirkjuna frá bænum
[Höfðabrekku]“, en í fyrrnefndri frásögn er það haft eftir Runólfi
bónda, að í hlaupinu hafi vatnsgangurinn orðið svo mikill, „að þegar
hann stóð við bæardyr sínar hafi séð gusurnar á sandinum bera svo
við sem þær væru svo háar sem kirkjumænirinn eða jafnvel yfir
hann ganga“.
Vel má vera, að mér fróðari menn geti leitt rök að því, að Sigurð-
ur Stefánsson hafi ekki getað verið við sjóróðra í Garði vorið 1721,
og fellur þá þessi tilgáta, en þangað til er ég heyri eða les þau rök,
lief ég það fyrir líklegt, að Sigurður liafi skrifað þessa merkilegu
goslýsingu.
Hér á eftir er tekið saman úr þessari heimild og öðrum aðeins það,
er veitir upplýsingar um öskufallið í Kötlugosinu 1721.
I viðbótarskýrslunni, sem fyrr getur, segir svo: „Um hlauptimann
stóð vindur af suðri og stundum lítið af landsuðri, dreif þá ösku og
eldmökkinn hak við Eyjafjallajökul og norðan Fljótshlið og Þríhyrn-
ing um Heklufjöll og þessvegna mest í óbyggðir milli sunnan og
norðanlands. Lítið öskufall dreif eitt sinn þversum og út á Selvogs-
heiði, aska hafði og nokkur komið norðarlega í Borgarfirði og norðan-
lands hafði einnig mikið myrkur komið, því það sagði mér Benedikt
Þorsteinsson lögmaður (er sat á Rau<5askriÖu. [12]1) í Þingeyjarsýslu)
á alþingi, að hann hefði urn hádegi dags sökum öskufallsins hlotiS
aS láta tendra Ijós inni í húsum (S.t.s. Isl. IV, bls. 230).
1 anónýmu frásögninni, sem áður var um rætt, segir svo um ösku-
fallið:
„Árið 1721 þann llta Maii að liðinni Messu sást í Skálholti upp-
koma stór svartur mökkur úr Kötlugjá í Mýrdalsjökli, sami mökkur
sást strags um morgunin austur í Skaptafells sýslu, á Geyrlandi á
Siðu hann sást alt austur í öræfi, hvurjum um sama dags kvöld
fylgdu miklar eldíngar með hræðilegum dýnkjum og framm hlaupi
jökulsins, sem þá strags framm hljóp fyrsta sinni með ógnarlegum
vatnsgangi.
1) Tölur innan homklofn eru þœr sem viðkomnndi stnðir eru merktir með n
meðfylgjandi korti (1. mynd).