Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1955, Blaðsíða 37

Náttúrufræðingurinn - 1955, Blaðsíða 37
Einar H. Einarsson: Breytingar á fuglalífi í Mýrdal írá því um 1920 Fyrst vil ég geta arnarins, konungsins sjálfs. Fyrir 1920 og nokk- uð lengur kom það ekki svo sjaldan fyrir, að hann sæist svífa á sínum hreiðu vængjum hér yfir ijallsbrúnunum, en síðan fyrir 1930 hefur hann ekki sézt hér, svo ég viti. Góðar heimildir hef ég fyrir því, að hann hafi verpt hér a. m. k. á þrem stöðum fram undir siðustu alda- mót. Annar fugl er fálkinn, sem að mestu eða öllu er horfinn héðan. Allt fram að 1935 sást hann hér á hverju ári, og sum árin virtist all- mikið af honum, sérstaklega man ég, að mikið bar á honum hörðu vet- urna um og fyrir 1920. Var hann þá lítt þokkaður af okkur krökk- unum, því honum þóttu stokkendurnar, er jafnan halda sig á og við Deildarána, ljúffengur matur. Eftir mildu veturna um 1930 fór að bera minna á honum, og nú síðustu 10 árin hef ég alls ekki séð hann. Ekki vissi ég til þess, að fálkinn verpti hér eftir að ég man eftir, en það sagði Jón Gíslason á Norðurgötum mér, að nokkru fyrir síðustu aldamót hefði hann vitað til, að fálki verpti í svonefndu Galt- árgljúfri í Heiðarheiði, en það er eini staðurinn, sem ég hef fengið örugga heimild fyrir að hann hafi verpt hér. Keldusvín var hér mjög algengt allt fram yfir 1935, en nú virð- ist það að mestu horfið. Til dæmis vorið 1949, um fyrstu sumarhelg- ina, drapst hér mýrispíta svo hundruðum og jafnvel þúsundum skipti, og nokkuð af skógarþresti, tjaldi og lóu, en ekki fann ég eitt einasta keldusvín, og hefði það þó vart átt að þola slíkt íhlaup betur en aðrir fuglar. Fyrir Kötlugosið 1918 var hér allmikið af rjúpu, en veturinn eftir og veturinn 1919—20 féll hún hér svo, að mörg ár eftir það var nærri hending, að hér sæist rjúpa, þar til nú síðustu árin, að henni hefur mjög fjölgað. Um orsakir þess, að hún féll svo mjög eftir Kötlugosið, hef ég gert mér í hug eftirfarandi:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.