Náttúrufræðingurinn - 1955, Side 23
UM UNDAFlFLA
85
renna undir það, að þessi fjölbreytni geti verið eðlileg. 1 fyrsta lagi
eru þróunarskilyrði tegundanna hér ágæt á hinu víðáttumikla, órækt-
aða graslendi og í hinum grónu, gömlu hraunum. f öðru lagi er ég
sannfærður um, að þó nokkrar tegundir hafa lifað hér af hinn síðasta
ísaldarvetur, og hafa þær tegundir litlum eða engum breytingum tek-
ið, síðan ísöld lauk. 1 þriðja lagi hefur að minnsta kosti eitthvað af
tegundum borizt inn frá Bretlandseyjum, sennilegast á mismunandi
tímum eftir jökultímann, og hafa sumar þeirra haldið hinu brezka
útliti og eðli, eins og ég hef getið hér að framan, en aðrar hafa tekið
hliðarhopp og rutt sér nýjar brautir í samræmi við íslenzk gróðurskil-
yrði. 1 fjórða lagi er ekki fjarri að ætla, að örfáar tegundir hafi flutzt
inn frá Noregi og Færeyjum á landnámstíð, þó að efni standi ekki til
eins og er að sanna það. Og i fimmta og siðasta lagi gæti kynblöndun
hafa átt sér stað, ef tegundir með eðlilegum frjóvgunarhæfileikum
hefðu vaxið hér, eftir að jökultima lauk, og er ég ekki grunlaus um,
að svo hafi verið.
Ef Færeyjar eru teknar til samanburðar við Island, þá eru jarð-
vegsskilyrði þar öll lakari en hér til að skapa fjölbreytni í fíflagróðri,
enda er undafíflagróður þar einhliða og margar tegundirnar líkar
hver annarri, og flestar litið skyldar skandinavískum tegundum. Um
Grænland er svipaða sögu að segja. Sennilega hafa varla fleiri en
3 tegundir lifað þar af síðustu isöld, þar á meðal Fellafífillinn.
Örfáar þeirra gætu verið norskar og hafa komið inn með mönnum.
Á þeim svæðum Norður-Ameríku, sem næst liggja Grænlandi, er eng-
inn eða mjög fátæklegur fíflagróður og allt landnám tegundanna Græn-
landi í óhag. En hvað um flutning frá Bretlandseyjum? Ef ætla má,
að fuglar geti flutt jurtafræ á milli landa, er höf skilja, ef leiðin er
ekki því lengri, þá eru líkurnar mun meiri fyrir því, að sá flutningur
hafi átt sér stað frá Bretlandseyjum til Islands, heldur en frá Bret-
landseyjum til Grænlands, þar sem fuglalíf Grænlands er mun fá-
tækara en íslenzkt fuglalíf, enda hafa aðeins ein eða tvær undafífla-
tegundir fundizt í Grænlandi, sem gætu verið af brezkum uppruna.
XII. Lokaorð.
Ég hef getið þess hér að framan, að ég teldi undafíflarannsóknir á
Islandi þýðingarrikar fyrir lausn vandamálsins mikla: Hvernig og hve-
nær hefur innflutningur íslenzku flónmnar farið fram? Tökum dæmi:
Við berum saman einhverja íslenzka fræplöntu með tvíkynja æxlun
við erlenda tegund. Otlit jurtarinnar gefur ekki til kynna, eftir hvaða