Náttúrufræðingurinn - 1968, Side 120
106
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
skálans og syðra vatnsins (sjá kort). Melgras kom einnig í ljós ná-
lægt fjörukálsplöntunum á norðausturströndinni. Á þeim sama stað
stungu nokkrar plöntur af Honkenya peploides (L.) Ehrh., fjöru-
arfa, upp kollinum (Einarsson 1967). Fjöruarfinn hafði ekki fundizt
áður í Surtsey, livorki fræ né annað af honum. Það má telja nokkurn
veginn fullvíst, að þessar þrjár tegundir, fjörukál, melgras og
fjöruarfi, hafi borizt með sjó til Surtseyjar (Friðriksson 1966 og
Einarsson 1967), enda hafa Jzær einmitt vaxið Jrar við hæsta sjávar-
borð í fjörunni, og að þær hafi komið frá Heimaey þar sem þær
vaxa allar (Baldur Johnsen 1939 og 1948). Allar þrjár tegundirnar
eru líka dæmigerðar strandplöntur og fræ þeirra þola prýðilega
seltu og dreifast mestmegnis með sjó.
Sama máli gegnir um fjórðu tegundina, sem fannst í Surtsey
s. 1. sumar, Mertensia maritima (L.) S. F. Gray, blálilju. Af henni
fannst þó ekki nema eitt lítið eintak í nýja hrauninu á austur-
strönd syðra vatnsins, og í september þegar ég var síðast á ferð í
Surtsey, var ekki sjáanlegt nema eitt hlað af þessari bláliljuplöntu,
sem stóð upp úr sandinum.
Sumarið 1967 fundust líka mosar í Surtsey í fyrsta sinn. Fyrst
fundust þeir í sandinum á norðvesturbakka nyrðra vatnsins, en 9.
september mældi ég tvær mosabreiður, sem þar voru þá, og var
sú stærri 70 cm í þvermál. Sama dag fann ég fjórar litlar mosabreið-
ur í 60 m hæð yfir sjó nærri miðju eyjarinnar (sjá kort), eða langt
frá þeim stöðum, sem plöntur höfðu áður fundizt í Surtsey og
um 500 m frá ströndinni. Mosarnir uxu á þunnu sand- eða ösku-
lagi, sem liggur á volgum jarðri hrauns Jiess sem rann úr litlu gíg-
unum, sem mynduðust innan í gígbörmum gamla Surts. Bergþór
I mynd. Loftmynd af Surtsey 13. júlí 1967. Allir vaxtarstaðir plantna eins og
Jteir voru 11. sept. 1967 og getið er í greininni eru merktir á myndinni. Hvert
stærri merkjanna (1—6) sýnir vaxtarstað einnar plöntu. 1: Elymus arenarius,
melgras, 2: Festuca rubra, túnvingull, 3: Mertensia maritima, blálilja, 4: mosar,
5: Honkenya peploides, fjöruarfi, 6: Cakile edentula, fjörukál, 7: 21 planta
af Honkenya peploides, fjöruarfa, sem vaxa dreift á dálitlu svæði. —
Airophotograph of Surtsey July 13th 1967. All the plant localities mentioned
in the paper as they ivere on September llth 1967 are marked on the photo-
graph. Eacli of the bigger marks (1—6) shows the localily of one specimen,
no. 4 shows moss clusters and no. 7 shows 21 specimens of Honkenya peploides,
scattered over a small area.
Landmælingar Islands (Icelandic Survey Department).