Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1972, Síða 11

Náttúrufræðingurinn - 1972, Síða 11
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 3 en þá munu framkvæmdir í Helsingör hafa verið komnar allvel á veg. Thorson stjórnaði rannsóknastöðinni í Helsingör með atorku og dugnaði eins og hans var von og vísa frarn til 31. marz 1970, en þá var honum veitt lausn frá störfum, bæði sem forstjóra og prófessor, samkvæmt eigin ósk. Hann var að vinna að stóru verki um eggjahulst- ur og viðkomu fortálkna úr öllum höfum heims og hugðist nefna það „Egg Capsules and Reproduction in Marine Prosobranchs". Hann var byrjaður á undirbúningi verksins löngu áður en hann varð pró- fessor, en honum mun hafa verið Ijóst, að mikil stjórnunarstörf ásamt kennslu samrýmast illa stórum vísindalegum verkum. Einnig er líklegt að hann hafi fundið að starfsorkan hafi verið farin að minnka af heilsularsástæðum. Hann losaði sig því við önnur tíma- frek störf og hugðist eingöngu helga sig þessu mikla áhugamáli sínu, en það var því miður of seint. Prófessor Thorson var mjög eftirsóttur fyrirlesari og fór því í margar fyrirlestraferðir víða um heirn. Einnig sóttu margir, sem hugðust stofnsetja rannsóknastöðvar í sjávarlíffræði, til hans góð ráð, og munu fæstir, sem til hans leituðu í því skyni, hafa farið bón- leiðir frá honum. Thorson skrifaði um íslenzka fortálkna í sjó í „The Zoology of Ice- land“ og nefnist heftið „Marine Gastropoda Prosobranchiata“. Rit- ið er 150 síður og er þar greint frá 132 íslenzkum kuðungategundum og útbreiðslu þeirra, bæði hér og erlendis, ásamt þeirn aðalatriðum, sem þá voru þekkt um egg þeirra og lirfur. Hann ritaði fjölda greina bæði vísindalegra og hálfalþýðlegra, sem ekki verða taldar upp hér. Hins vegar ætla ég að nefna bók, sem hann ritaði, og var gefin út 1961 og heitir „Livet i havet". Hún er alþýðlega rituð, en hefir mjög mikinn og staðgóðan fróðleik upp á að bjóða um lífið í hafinu. Þar að auki er bókin, eins og vænta mátti, mjög vel skrifuð og skemmti- leg aflestrar. Hún kom út á sænsku aukin og endurbætt 1965, og nú er hún komin eða að koma út á ensku með endurbótum, sem Thor- son hafði nýgengið frá þegar hann lézt. Það er mikill skaði fyrir sjávarlíffræðina að prófessor Thorson skyldi ekki verða lengra lífs auðið, svo að hann gæti lokið því verki sem hér hefir verið nefnt, og ýmsu öðru, sem hann hafði á prjón- unum, þar á meðal bók um greiningu danskra og brezkra fortálkna. Ennþá sárara er þó fráfall hans fyrir ættingja hans og vini, en vin- irnir voru margir og víða um heim.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.