Náttúrufræðingurinn - 1972, Qupperneq 26
14
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Lotigistigma var miklu útbreiddari áður fyrr. Blaðlús ein, sem fannst
á Formósu 1925 á einni tegund Liquidambar (L. formosana), var
gefið nafnið Dilachnus liquidambarus af Takahashi (1925). Seinna
flutti hann blaðlúsina þá arna yfir í ættkvíslina Longistigma (Taka-
hashi, 1927). Það lítur út fyrir, að hún hafi aðeins fundizt tvisvar
sinnum. Athyglisvert er, livað hún líkist mikið L. caryae.1) Ef til
vill er hér aðeins um landfræðilegt afbrigði eða undirtegund af L.
caryae að ræða. Eitt er víst; blaðlúsastofnarnir (populations) í Aust-
ur-Asíu eru bæði náskyldir Longistigma-blaðlúsum þeinr, sem
kunnar eru úr íslenzkum tertíerlögum, og þeim sem finnast núlif-
andi í Norður-Ameríku. Allar þessar blaðlýs geta skoðast sem afkonr-
endur Longistigma-blaðlúsanna, sem lifðu á arkto-tertíeru geoflór-
unni, en einasti fulltrúi þeirra, senr enn hefur fundizt, varðveittist í
fornum íslenzkum jarðlögum.
Aldur lagasyrpunnar íMókollsdal.
í rauninni höfum við tvær aðferðir, senr hugsanlegt er að geti
sagt okkur til um aldurinn á lögunum í Mókollsdal. í fyrsta lagi;
að finna hinn rannverulega (absólúta) aldur laganna með hjálp
geislavirkra samsætna (ísótópa), þ. e. kalí-argon aðferðin. I öðru lagi;
að ákvarða aldur laganna afstætt (relatívt), en þá er aldurinn dæmd-
ur út frá afstöðu þeirra til annarra laga, senr þegar hafa verið ald-
ursákvörðuð með tilliti til raunverulegs aldurs. Raunveruleg ald-
ursákvörðun hefur ekki ennþá verið gerð á lögunum í Mókollsdal.
Eftir stöndum við því með hina afstæðu aðferð, og hér höfum við
aðeins fátt eitt til að styðjast við.
Mókollsdalur liggur á svæði tertíeru blágrýtismyndunarinnar, senr
er elzta jarðmyndun landsins. Samkvæmt jarðlagahallanum á blá-
grýtissvæðunum mun elzta bergs á íslandi vera að leita við norðan-
vert ísafjarðardjúp, í Borgarnesi, í Fjörðum og í Gerpi. Elzta berg
á Islandi, sem ennþá lrefur verið aldursákvarðað nreð tilliti til raun-
verulegs aldurs, reyndist vera frá míósen. Berg frá Breiðadalsheiði á
Vestfjörðum reyndist vera 16,0 ± 0,3 milljón ára gamalt, sýnis-
horn úr basaltlagi við Borgarnes var 13,2 ± 2,0 milljón ára og bas-
alt- og andesíthraunlög í Gerpi 12,5 ± 0,2 milljón ára. Allar þessar
1) Við þökkum Dr. Charles Chia-chu Tao, Taipei, Taiwan (Formósu) kærlega
þá viiisemd að lána okkur Longistigma liquidambara til samanburðarrann-
sókna.