Náttúrufræðingurinn - 1972, Side 38
26
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
í sambandi við áður umrædda þykkt grágrýtislaganna við Rauð-
hóla má geta þess að um sama leyti var borað við Árbæjarstíflu. At-
huganir á segulsteí'nu í berginu þar leiddi í ljós að breyting verður
á 68,5 m dýpi í holunni og þar byrjar berg með öfugri (R) segul-
stefnu, sem helst niður á um 86 m dýpi en þar tekur aftur rétt segul-
stefna (N) við og nær óslitið niður á 108 m. Verður það ekki nánar
rakið hér. Þessi breyting verður við Árbæjarstíflu, 18,5 m neðan við
núverandi sjávarmál, en við Rauðhóla á 90 m neðan við það eins
og áður segir. Það sýnir að þessi mót eru röskum 70 m lægra við
Rauðhóla og gæti það vel stafað af því að þar er kornið inn á aðal-
misgengissvæðið, sem liggur um Hjalla suðvestur af Elliðavatni, en
sýnilegt misgengi þar er mest um 65 m.
Borað var 1963 við Skyggni rétt austan við brúna ylir Elliðaár. Sú
hola er 332,7 m djúp. Á 145 m dýpi í henni er breksíulag, af óviss-
um uppruna. Rétt neðan við Jrað, á 148 m kemur öfug segulstefna
og mundu það vera sömu mót og koma fyrir í Rauðhólum á 164
m dýpi. Miðað við núverandi sjávarmál eru þessi skil 15 m ofar en
í Rauðhólum. Virðist það geta samræmst því sem vitað er um mis-
gengin á þessum slóðum. Vestasta vel sýnilega misgengið er um
Skyggni og vesturenda Rauðavatns, en svo er hvert af öðru austur
fyrir Rauðhóla. Er því í alla staði líklegt, að nokkru meira sig hafi
orðið við Rauðhóla en við Skyggni. Að sjálfsögðu má hugsa sér
ýmislegt, sem getur truflað þannig, að þessar niðurstöður séu ekki
réttar. Hugsast gæti t. d., að mikill hluti bergs með öfuga segulstefnu,
hafi rofist burtu á ákveðnum slóðum en haldist á öðrum, áður en
grágrýtishraunin runnu. Jökulurð leggst yf'ir hæðir og dali í lands-
lagi og kemur því fyrir í mismunandi hæð. Svona mætti lengi telja.
Hins vegar verður því varla haggað, að grágrýtislögin ofan við fyrstu
segulstefnubreytinguna séu yngri en ca. 700.000 ára.
Ónnur grágrýtissvœði
Eins og vikið er að áður í þessari grein kemur grágrýti fyrir víðar
en í nágrenni Reykjavíkur, þó ekki verði um það fjallað hér. Raun-
ar er það ein algengasta bergtegundin hér á landi og finnst á öll-
um þeim tímabilum, sem jarðsaga íslands spannar. Mikill hluti þess
er væntanlega frá svipuðum tíma og Borgarhóla- (Reykjavíkur-) grá-
grýtið. Hversu líkt það er á mismunandi stöðum, má sjá af töflunni
hér á eftir: