Náttúrufræðingurinn - 1972, Page 43
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
31
Theodór Gunnlaugsson
Nokkur orð um aldur svartbaka
í hinu merka fræðiriti um fugla: „Tlie Handbook of British
birds“ 5. hefti, bls. 103, er margt sagt um svartbakinn (Larus
marinus). Þar er talað um vaxtartíma hans, fæðuöflun og ferðalög
eftir árstíðum, varpstaði og margt fleira. Þar er líka að finna ágæta
lýsingu á litarbreytingum hans, ásamt skýringarmyndum, frá því
liann er fullvaxinn ungi, að fjögurra ára aldri. Þá er hann loks kom-
inn í þau litklæði, sem ekki breytast eftir það, nema örlítið, eftir árs-
tíðum. í fræðibókum um fugla, hef ég þó hvergi séð getið um það
merki, sem ekki bregst, og aðeins gamlir svartbakar geta státað af.
Hér verður drepið á fáein atriði, sem vera má að gefi ábendingar
um aldur svartbaka, og þó öllu heldur kann að vekja löngun til frek-
ari athugana á furðulegum varnarhæfileikum hans og lifnaðarhátt-
um. En án slíkrar þekkingar er óhyggilegt að hefja sókn gegn yfir-
gangi hans.
Þar sem ég ólst upp og átti heima, langt upp í landi, meira en
tvö hundruð metra yfir sjó, kynntist ég lítið svartbökum, nema þeg-
ar þeir komu á veiðiferðum sínum á vatnið, sem var rétt við bæ-
inn. Það var þá mjög grunnt og sóttu þeir stundum í að éta silung
tir netunum. Mörg sumur bar þó ekkert á því, og ekki minnist
ég þess, að tveir svartbakar væru staðnir að slíku sama sumarið.
Þegar innan við fermingu var ég oft á stjái með byssu í hendi. Þetta
var á morgnana milli klukkan fjögur og fimm, og faldi ég mig
undir barði, við vatnið, þar sem ég hafði kvöldið áður lagt netin,
örstutt frá landi. Fékk ég þá mörg tækifæri til að fylgjast með því,
hvernig þessir víkingar höguðu sér. En margar fór ég fýluferðirnar.
Þeir voru svo varasamir og beittu svo mörgum brögðum, að nærri
lá við, að þeir sannfærðu mig um, að þeir hefðu sagnaranda, er
segði þeim frá hættunni. Frá viðbrögðum þeirra, verður þó ekkert
sagt hér, en mest dáðist ég að aldursforsetunum, hverju sinni. Og
því gleymdi ég aldrei, þegar þeir tilkynntu, með dimmum, hlakk-
andi hlátri, hátt í lofti, að þeir vissu ósköp vel um alla ráðagerð