Náttúrufræðingurinn - 1972, Page 57
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
45
írskennd, oltast brún að lit, og kenrur
í Ijós við þroskann.
Kapilluþræðirnir hjá Lycoperdon
eru sem kallað er jaínstofna, þ. e.
greinarnar eru langar og álíka gildar
og aðalstofnarnir. Gróin eru ýmist
slétt eða broddótt og halalaus hjá öll-
unr íslenzkunr tegundum. Físisvepp-
irnir vaxa á jarðvegi eða á fúnunr trjá-
stubbum, oftast nokkur aldin sanran,
í hópum eða knippum, og finnast í
skógunr eða kjarri, lyng- og grasmó-
um.
Físisveppirnir greinast frá eld-
sveppunum á perulagi aldinsins, jafn-
stofna kapilluþráðum og halalausum gróum. Hins vegar er að-
greining þeirra frá gímusveppum ekki eins einföld, enda ekki fangt
síðan farið var almennt að skilja þessar ættkvíslir að, senr áður töld-
ust báðar til Lycoperdo7i í víðustu nrerkingu. Aldin gínrusvepp-
anna eru þó oftast belglaga, stærri en aldin físisveppanna, og opnast
þannig, að allur efri hluti belgsins grotnar niður, en eftir verður
víð skál (gíma) og þeir vaxa sjaldan í knippum. Hjá ójrroskuðunr
sveppum getur stundum verið erfitt að greina þessar ættkvíslir að.
Rétt er að geta þess að ættkvíslamörk físisveppaættarinnar eru ekki
skýrari en svo, að enn eiga sér stað tilfærslur á tegundum milli ætt-
kvísla. Þannig hefur þýzki sveppafræðingurinn Kreisel nýlega yf-
irfært nokkrar tegundir smávaxinna belgsveppa frá Lycoperdon til
Bovista, og ætla má að jrað verði látið gilda. Þetta þýddi að sjálfsögðu
nýja skilgreiningu beggja ættkvíslanna, og jrar með er aðgreining
Jreixra ekki eins einföld og áður var lýst. Auk þessa hafa orðið mikl-
ar nafnbreytingar á tegundunum á síðari árum, og margar tegundir
skilgreindar að nýju. Gerir þetta erfitt um vik með samkenningu
(identification) á gömlum sveppafundum.
Heitið Lycoperdon kemur iðulega fyrir í gömlum ritum (hér á
landi fyrir aldamótin 1800) og merkir einhverja sveppi af físisveppa-
ætt, oftast Calvatia-tegundir. Getið hefur verið um a. nr. k. sjö teg-
uirdir af Lycoperdon frá Islandi. Þrjár Jreina tilheyra nú ættkvísl-
inxri Calvatia, eiir er talin til Bovista (af Kreisel) og tvær eru óviss-
ar, þannig að lítið er vitað hvaða sveppi þær rauirverulega eiga að
utbyrda
innbyrda
]. mynd. Þverskurður al lísi-
svepp (Lycoperdon).