Náttúrufræðingurinn - 1972, Síða 66
54
NÁTTÚRU FRÆÐINGURINN
8. mynd. Perufísi (Lycoperdon perlatum), safnað í nágrenni Akureyrar, 23.
okt. 1961. Ljósm. H. Kr.
undir, sem sumir vilja jafnvel telja sjálfstæðar. Samkvæmt nafngrein-
ingu Demoulins tilheyra íslenzku eintökin aðaltegundinni (var.
perlatum). Tegundin er dreyfð um allan heim, að heita má. í Nor-
egi hefur hún fundist norður á Finnmörku, og afbrigðið v. nigre-
scens (= Lycoperdon nigrescens Pers) hefur fundist á Austur-Græn-
landi, á svipuðum breiddargráðum og hér.
Nafnið Lycoperdon gemmatum kemur fyrst fyrir í sambandi við
íslenzka sveppi hjá Grönlund 1879, og er notað um svepp, sem hann
safnaði við Mývatn árið 1876, og nafngreindur af E. Rostrup o. fl.
Mér hefur ekki tekist að finna jietta eintak í söfnum og verður jtessi
fundur því að teljast vafasamur um sinn.
í sveppalista Rostrups 1903 er getið um L. gemmatum frá mörgum
stöðum á íslandi, safnað af Ólafi Davíðssyni og Ostenfeld. Eintök frá
tveimur þessara fundarstaða eru varðveitt í grasasafni Náttúru-
fræðistofnunar fslands, þ. e. Hof í Hörgárdal, 14. 7. 1899 og Gásir,
19. 7. 1899, safnað af Ólafi. Báðir þessir fundir tilheyra tegund-
inni Lycoperdon molle. Eintök frá öðrum fundarstöðum virðast ekki
hafa varðveizt, en af þessu má ef til vill draga þá ályktun, að allt