Náttúrufræðingurinn - 1972, Page 67
NÁTTÚRU FRÆBIN G U R1 N N
sem nefnt hefur verið L. gemmatum frá íslandi, sé raunar L. molle,
og hugsanlega einnig Calvatia-tegundir. (sbr. einnig M. Lange:
Gasteromycetes of Greenland, 1948).
Rostrup (1903) getur einnig um tegundina Lycoperdon echina-
tum, sem hann segird’undna á Möðruvöllum af Stefáni Stefánssyni.
Tegund þessi er náskyld L. perlatum, en hins vegar suðræn að út-
breiðslu og því litlar líkur til að hún finnist hér. Samkvæmt M.
Lange 1948 (bls. 17) er þessi fundur í Arctic Herbarium í Kaup-
mannahöfn, og tilheyrir ótvírætt L. umhrinum þ. e. því sem hér er
kallað L. molle.
M. P. Christiansen (1941) lýsir tegund, sem hann kallar L. echinul-
atum B. et Br. Tegund þessari var frumlýst frá Ceylon, og mun ekki
hafa fundist með vissu í Evrópu. Tilvera hennar á Islandi er því í
hæsta rnáta ólíkleg. Hin stutta lýsing Christiansens á þessari teg-
und gæti bent til þess að hann hefði fundið L. perlatum, en úr því
verður ekki skorið, þar eð eintökin eru ekki varðveitt, svo mér sé
kunnugt. Lýsing Christiansens á L. echinulatum stemmir heldur
ekki sem bezt við L. gemmatum., og ólíklegt að hann hefði ekki þekkt
þá tegund og kallað liana réttu nafni, þar sem hún mun vera al-
geng í Danmörku.
Lycoperdon perlatum er því fyrst með vissu fundin af höfundi
í grennd við Akureyri, 23. október 1961, en þar óx hún í graslendi.
Síðan fannst tegundin aftur x Vaglaskógi, 29. ágúst 1967. Um aðra
örugga fundi þessarar tegundar hér á landi er mér ekki kunnugt, og
virðist hún því vera fremur sjaldséð. Minnkar það enn líknrnar
fyrir, að hinir görnlu fundir séu réttir.
Að lokum skulu hér taldar nokkrar tegundir, sem talizt hafa til
ættkvíslarinnar Lycoperdon, og getið hefur verið frá Islandi í ýmsum
heimildum. Sumar þeirra hafa við nánari athugun safneintaka,
reynzt vera aðrar tegundir en nafngreiningar þeirra sögðu til um,
og hefur þegar verið getið um nokkur slík tilfelli, aðrar eru vafasam-
ar sökum þess að þær hafa ekki fundist á síðari árum, og engin safn-
eintök eru til að sanna tilveru þeirra hér, og enn aðrar falla burt
sökum þess að þær hafa verið fluttar yfir í ættkvíslina Calvatia.
Lycperdon pusillum Batsch (smáfísi) (= Bovista pusilla (Batsch)
ex Pers.) Tegundar með þessu nafni er fyrst getið héðan af Grön-
lund 1879, frá Mývatni og Reykjavík. Rostrup (1903) kallar tegund-
ina Globaria pusilla og bætir við mörgum fundum úr Eyjafirði, frá