Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1972, Side 72

Náttúrufræðingurinn - 1972, Side 72
60 NÁTTÚRUF RÆ ÐINGURINN 1. mynd. Stóra Eldborg undir Geitahlið. Eldrásir þrjár liggja iit frá gígunum. Sú þeirra, sem mest er liggur til austurs út frá gígnum næst norðan við Eldborg, og virðist mesta hraunrennslið hafa verið þaðan. Sú rás stefnir austur með Geita- hlíð, en hverfur brátt inn undir hraunið úr Litlu Eldborg. Næsta rás stefnir nær beint til suðurs, en hverfur skammt neðan við stóru Eldborg og sést ekki ofan vegarins eftir það. Vel gæti þar verið hellir í framhaldi af hraunrásinni, því ekki verður annað séð en neðsti hluti hennar séu leyfar af helli, sem fallið hefur saman. Þriðja hraunrásin liggur svo nokkuð til suðvesturs og alla leið niður á sléttuna neðan og vestan við Eldborg. Þar hefur fjárrétt verið hlaðin í henni og veggir hrauntraðanna notaðir á tvo vegu. Þetta er rétt við vesturjaðar hraunsins, aðeins sunnan vegar. Tvær síðastnefndu eld- rásirnar hafa komið úr dálítilli skál suðaustan undir borginni. Sti skál er hraunop borgarinnar, en í Eldborg sjálfri virðist eingöngu hafa verið um kvikustrókavirkni að ræða. Sést það bezt á byggingu borgarinnar sjálfrar (2. mynd). Þó virðast hraungusur hafa komið úr gígnum um skarð, sem snýr móti austri og er beint upp af upp- tökum hraunrásanna beggja. Á þeim stað má sjá hraunkvilur, sem fallið hafa ofan í hálfstorknað hraunið og sokkið í það til hálfs.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.