Náttúrufræðingurinn - 1972, Side 76
64
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Útlit og innri gerð
Hraunið úr Stóru Eldborg er að mestu helluhraun, enda þótt
kargi komi fyrir í því á stöku stað.
Það er ólinvínbasalthraun með allstórum ólivíndílum, en fremur
lítið er um ólivín í grunnmassa þess. Til þess að fá mynd af sam-
setningu hraunsins voru gerðar fjórar þunnsneiðar rir því og
taldar í þeim steintegundir undir smásjá. Taldir voru samtals 2847
punktar. Tafla I sýnir árangurinn.
TAFLA I
Þunnsneið nr. 118 119 858 1676
Plagioklas % 49,22 45,68 48,80 37,50
Pyroxen % 23,36 29,02 37,72 38,10
Olívín % 11,60 11,46 7,50 16,16
Málmur % (Opaque) 12,92 13,84 5,08 9,24
Olívín dílar % (Xenokrists) . . 9,91 6,84 7,50 11,70
Heita má að engir feltspatdílar séu í þeim hluta hraunsins þar
sem sýnin eru tekin. Þó koma þeir fyrir í því á stöku stað og virðist
því líklegast að þeir liafi komið á ákveðnu tímabili gossins líkt og
skeði í Surtsey. Geta má þess að þunnsneið 1676 er úr sýni, sem
tekið var inni í hraungígnum norðan við Stóru Eldborg, nr. 118
ofarlega á hrauninu en 119 hins vegar niðri við sjó við Bergsenda.
Verulega meira er af ólívíni í sýninu rir gígnum heldur en liinum,
sem fjær eldstöðinni eru tekin. Gæti það bent til þess að ólívín hafi
aukizt er á gosið leið.
Eins og sjá má af töflunni er ólivín að langmestu leyti senr dílar
í hrauninu. Þeir eru oft 3—4 mm í þvermál og sumir stærri. Inni í
þessum ólívínkristöllum eru oft nrjög smáir, reglulegir kristallar úr
öðru efni. Þeir eru dökkbrúnir, ógegnsæir og nær svartir utan með.
Stundum virðast þeir ummyndaðir svo að varla er nema net eitt
eftir. Kristallar þessir eru þó svo smáir að erfitt er að gera sér fulla
grein fyrir byggingu þeirra, en hér mun vera um kromit eða krom-
spinel að ræða. Ekki er þetta neitt einkennandi fyrir Eldborgar-
hraunið Jrví ólivín með svona kristöllum í er víðar í hraunum á