Náttúrufræðingurinn - 1972, Síða 78
66
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
TAFLA II
Þunnsneið nr 754 116 859 861
Plagioklas % 48,65 46,60 48,22 49,47
Pyroxen % . . 38,12 39,80 38,86 36,94
Olívín % 1,66 4,85 2,20 2,61
Málmur % (Opaque) . . . . 11,55 8,69 10,72 10,96
Dílar (Xenokrists) Plagioklas % 14,12 13,42 12,57 16,18
Pyroxen % 0,34 2,42 3,03 0,78
Eins og sjá má af töflu I og II er allverulegur munur á hraunum
frá Stóru Eldborg og Litlu Eldborg. Hraunið úr Stóru Eldborg
er ólívín porfyritiskt en úr Litlu Eldborg er það feltspat porfyritiskt.
Aldursmunur hraunanna virðist allverulegur.
Hnyðlingar
Bæði í Stóru- og Litlu Eldborg má finna nokkuð af hnyðlingum,
en flestir eru þeir smáir. Þeir virðast vera af sömu gerð og þeir, sem
svo víða er að finna á þessum slóðum, en fyrst munu þeir hafa vakið
athygli við Grænavatn í Krísuvík.
Lauslegt yfirlit yfir samsetningu þeirra sýndi eftirfarandi:
Stóra Eldborg Litla Eldborg
Plagioklas .............. 94,69% 82,28%
Pyroxen .................. 3,13% 17,71%
Ólívín ................... 2,18% vottur