Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1972, Page 79

Náttúrufræðingurinn - 1972, Page 79
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN 67 Sven-Axel Bengtson: Athuganir á varpháttum fálka (Falco rusticolus) í Mývatnssveit 1960-1969 Á árunum 1960 til 1970 (að undanskildu árinu 1967) he£ ég stundað rannsóknir á öndum við Mývatn. Rannsóknirnar hafa farið fram á ýmsum tímum sumars (maí til september). Við athug- anir mínar við Mývatn hef ég getað fylgzt með fálkum nær dag- lega, og auk þess hefur mér gefizt tækifæri til að safna ýmsum gögnum um varphætti fálkans. í þessari grein verður fjallað um stofnstærð, varptíma og árangur varpsins. Athuganirnar fóru fram við Mývatn og í nágrenni þess. í vestri takmarkaðist athuganasvæðið a£ Mývatnsheiði, í suðri a£ Sellanda- fjalli og í norðri af Gæsafjöllum, en austurmörkin voru austan við Dalfjall. Flatarmál þessa svæðis er um 700 ferkílómetrar. Ég hef aldrei komið í Mývatnssveit fyrr á vori en um miðjan maí, og hef því ekki getað fylgzt með háttum fálkans á fyrsta hluta varptímans. Fyrsta verk mitt, eftir að ég kom á vorin, var að reyna að ganga úr skugga um fjölda fálkapara á svæðinu og að finna hreiðurstaðina. Árið 1966 var eina vorið, sem ég fann hreiður með eggjum. Venjulega höfðu eggin klakizt á þeim tíma, er ég kom fyrst að hreiðrunum. Alloft var þó ógerlegt að ganga úr skugga um, hvað útungun liði, vegna þess að ókleift var að hreiðrunum. Stofnstœrð Við athuganir mínar kannaði ég einungis gömul og þekkt hreið- urstæði og leitaði ekki kerfisbundið að nýjum varpstöðvum. Af þessum ástæðum má vera, að tölur mínar um fjölda varpstaða í notkun séu lægri en raunverulegur fjöldi varpstaða við Mývatn. Ástand varpsins í fimm fálkahreiðrum er sýnt í töflu 1. Tvö til fjögur pör urpu árlega á svæðinu nema árið 1968 og 1970, en þá varp þar aðeins eitt par. Aðrir íuglafræðingar, sem gert hafa til-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.