Náttúrufræðingurinn - 1972, Side 88
76
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Þorleifur Einarsson:
Skýrsla um Hið íslenzka náttúrufræðifélag 1971
Félagsmenn
Á árinu gengu 78 nýir félagar í félagið, en úr því liurfu 47. 1 árslok var
tala skráðra félaga því eins og hér segir: Heiðursfélagar 2, kjörfélagar 4, ævi-
félagar 73, ársfélagar 1288 hérlendis og 50 erlendis. Félagar eru þannig alls
1417, en auk þess eru um 50 stofnanir áskrifendur að Náttúrufræðingnum.
Stjórn og aðrir starfsmenn
Stjórn félagsins: Þorleifur Einarsson, dr. rer. nat., lormaður, Kristján Sæm-
undsson, dr. rer. nat„ varaformaður, Jón B. Sigurðsson, kennari, ritari, Ing-
ólfur Einarsson, verzlunarmaður, gjaldkeri og Sigfús A. Schopka, dr. rer. nat.,
meðstjórnandi.
Varamenn í stjórn: Einar B. Pálsson, dipl. ing., og Ólafur B. Guðmundsson,
lyfjafræðingur.
Endurskoðendur: Eiríkur Einarsson, verzlunarmaður, og Magnús Sveinsson,
kennari. Varaendurskoðandi: Gestur Guðfinnsson, blaðamaður.
liilstjóri Náttúrufræðingsins: Óskar Ingimarsson, bókavörður.
Afgreiðslumaður Náttúrufrœðingsins: Stefán Stefánsson, bóksali, Eaugavegi 8.
Stjórn Minningarsjóðs Eggerts Ólafssonar: Reynir Bjarnason, menntaskóla-
kennari, Guðmundur Kjartansson, ntag. scient., og Ingólfur Davíðsson, mag.
scient. Til vara: Ingimar Óskarsson, náttúrufræðingur, og Sigurður Pétursson,
dr. phil.
Aðalfundur
Aðalfunclur fyrir árið 1971 var haldinn i 1. kennslustofu Háskólans laugar-
daginn 12. febrúar 1972. Fundinn sóttu 25 félagsmenn. Fundarstjóri var kjör-
inn Tómás Helgason og fundarritari Leifur A. Símonarson.
Formaður llutti síðan skýrslu uni störf félagsins á árinu. Gjaldkeri las síðan
upp reikninga félagsins. Hvort tveggja var samþykkt athugasemdalaust. Þessu
næst var gengið til stjórnarkjörs. Úr stjórn skyldu ganga formaður, Þorleifur
Einarsson, og tveir stjórnarmenn aðrir, Jón B. Sigurðsson og Ingólfur Einars-
son. Tveir þeir fyrst töldu báðust undan endurkosningu. Formaður var kjörinn
Arnþór Garðarsson, og með honum í stjórn Ingólfur Einarsson (endurkjörinn)
og Tómás Helgason. I varastjórn voru endurkjörnir þeir Einar B. Pálsson og
Ólafur B. Guðmundsson. Endurskoðendur voru endurkjörnir þeir Eiríkur
Einarsson og Magnús Sveinsson og varaendurskoðandi Gestur Guðfinnsson.
Eyþór Erlendsson tók síðan til máls og þakkaði fráfarandi formanni störf hans