Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1972, Page 90

Náttúrufræðingurinn - 1972, Page 90
78 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Síðan ekið til Reykjavíkur. Veður var fremur kalt og hvasst. Þátttakendur voru um 70. Leiðbeinendur voru Kristján Sæmundsson, Stefán Arnórsson, Ing- var 15. Friðleifsson, Ágúst H. Bjarnason og Þorleifur Einarsson. Sunnudaginn 18. júlí var farin grasafræðiferð í Krísuvík. Fyrst var ekið að Kleifarvatni og þar m. a. skoðaður sverðmosi. Síðan var farið í Núpslilíðarháls og svo í fjöru við ísólfsskála. Veður var ágætt. Þátttakendur voru 35. Leiðbein- endur voru Eyþór Einarsson og Ólafur B. Guðmundsson. Sunnudaginn 12. sept. var farið til jarðfræðiathugana að Stardal. Þar var m. a. skoðað innskotsberg, öskjumyndun o. fl. Veður var ágætt. Þátttakendur voru um 70. Leiðbeinendur voru Kristján Sæmundsson og Ingvar B. Friðleifsson. Útgáfustarfsemi Af riti fólagsins komu út 4. hefti árgangsins 1970, 64. Itls., og 1. hefti ár- gangsins 1971, 48 bls., eða alls 112 Itls. Ritstjóri var Óskar Ingimarsson, bóka- vörður. Afgreiðslu Náttúrufræðingsins, útsendingu fundarboða og innheimtu ann- aðist Stefán Stefánsson, bóksali, svo sem verið hefur um árabil. Verðlaun Félagið veitti að venju verðlaun fyrir beztu úrlausn á landsprófi miðskóla. Verðlaun lilaut að þessu sinni Flildur Þ. Tómasdóttir, nemandi við Alþýðu- skólann að Eiðum. Fjárhagur Á fjárlögunt fyrir árið 1971 voru félaginu veittar kr. 75.000 til starfsemi sinn- ar. Styrkurinn rann allur til greiðslu á útgáfukostnaði Náttúrufræðingsins. Reikningar félagsins fara hér á eftir, en þó skal tekið fram, að reikningar Minningarsjóðs Eggerts Ólafssonar og Dánargjafar Helga Jónssonar fylgja ekki með að þessu sinni, enda hafa engar breylingar orðið á þeim aðrar en að vextir hafa bætzt við.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.