Náttúrufræðingurinn - 1972, Blaðsíða 4
82
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Jarðlagaskipan — elztu liparitmyndanir.
í jarðlögum á Torfajökulssvæðinu má skilja á milli allmargra
eininga eftir berggerðum, myndunarhætti og aldri (tafla 1).
Elztu myndanirnar finnast nálægt jöðrum þess sunnan og norð-
an megin, þar sem giljagröfturinn er mestur svo sem í Jökulgilj-
unum báðum og þvergiljum þeirra. Þarna koma fram þykk líparít-
hraunlög. Eitt af þeim er brúnleita, ryðmengaða líparítið í Brands-
gili. Það liggur undir Bláhnúk og Brennisteinsöldu og nær inn
í Vondugil. Þetta lag og annað, sem undir liggur, endar í brot-
stalli og hallar lögunum frá honum norður til Barms og Suður-
náms. Sunnan við brotstall þennan tekur við þykk líparítbreksía,
sem nær langt inn eftir suðurgrein Vondugilja, en í Brandsgili
halda hraunin áfiam innan við brotið. Þessi hraunlög eru vafalaust
runnin á íslausu landi, líklega á síðasta hlýskeiði ísaldar. Eftir
að þau runnu, hefur orðið öskjusig á Torfajökulssvæðinu og tak-
markast útbreiðsla líparíthraunanna að öðru leyti við öskjubarm-
inn, en hlutar hans eru t. d. Suðurnámur, Barmur og undirhlíðar
Ljósártungna og Jökultungna. í tengslum við öskjusigið hefur lík-
lega myndazt líparítbreksía sú, sem finnst í Vondugiljum og víðar.
Gjóskuberg, sem gæti verið hluti af sama lagi, finnst á öskju-
rimanum í Klukkugili og í Ljósártungum. Þar hvílir gjóskubergið
á jökulmynduðu líparíti. Líklega hefur því jökulskeið verið hafið,
þegar askjan og gjóskubergið mynduðust.
Meginhluti jarðmyndana á Torfajökulssvæðinu er frá þessu jökul-
skeiði. Er þar fyrst að geta jarðlagasyrpu, sem nefna mætti öskjufyll-
ingu. Uppistaðan í henni eru líparítgúlar og móberg, hvort tveggja
myndað í jökli, og fleygað inn í jökulvatnaset og jökulruðning.
Brennisteinsalda (sjá litmynd) er einn af þessum gúlum, og eru
fleiri henni líkir í Vondugiljum. Móbergið finnst sem dreifðir
blettir utan í giljum og fjallshlíðum og er yfirleitt ókunnugt um
upptök þess. Leifar af gosstöð hafa þó fundizt í Stóra Hamragili
(mynd II a). Á sama tíma og þessi gos urðu hafa jöklar og jökul-
vötn hlaðið niður kynstrum af framburði innan urn gosmyndan-
irnar. Þessi setlög finnast einkum á svæðinu vestur og suður frá
Laugum en einnig í Ljósártungum og Jökultungum. Þau liggja
utan í hlíðum Suðurnáms að sunnanverðu og niðri á jafnsléttu
eru þau í fellinu, sem liggur vestan að Jökulgilskvísl. Þau sjást
einnig uppi á Barmi beint framan við sæluhúsið í Laugum. Set-