Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1972, Page 24

Náttúrufræðingurinn - 1972, Page 24
100 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Jón Kristjánsson: Líf í stöðuvötnum Áhugi á náttúrufræði fer nú ört vaxandi meðal almennings, sér staklega vegna þess, að æ betur eru að koma í ljós þau áhrif, sem maðurinn hefur á umhverfi sitt, bæði viljandi og óviljandi. Aukin almenn þekking á lífverunum og umhverfi þeirra er því nauðsyn- leg, til þess að menn skilji þá baráttu, sem náttúran er að heyja við erkióvin sinn, manninn. Því þótt maðurinn tilheyri náttúrunni og ætti að lúta lögmálum hennar viljalaust, þá er nú svo komið, að mað- urinn er farinn að heimta, að móðir náttúra hlýði sér. Ætlun mín er þó ekki að ræða náttúruvernd hér, heldur að gera örlitla grein fyrir þeim lífheimi, sem hrærist undir yfirborði vatns, og því samspili, sem þar á sér stað. Það sem flestum dettur strax í hug, þegar farið er að minnast á líf í stöðuvötnum, er að sjálfsögðu fiskur, og menn velta því oft fyrir sér, hvers vegna fiskur sé betri og meiri í einu vatni en öðru. I þetta sinn ætla ég aðeins að minnast á hin al- mennu atriði vatnalíffræðinnar, en láta fiskinn bíða betri tíma. Veiðimenn og aðrir þeir, sem yndi hafa af silungi, skulu samt ekki láta þetta á sig fá, því fiskurinn hagar sér í samræmi við umhverfi sitt. Ef athugað er t. d. liitastig vatnsins og lifnaðarhættir hinna ýmsu lægri dýra, þá má þar oft finna skýringu á því, hvers vegna fiskurinn bítur á eða frekar, hvers vegna hann bítur ekki á þá flugu, sem veiðimaðurinn sýnir honum. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að vötnin okkar eru mjög mismunandi hvað viðvíkur stærð, dýpt og lögun, en hitt er ef til vill ekki jafn augljóst, að það er líka mikill líffræðilegur munur á þeim, og endurspeglast þessi munur meðal annars í mismunandi fram- leiðslugetu, sem oft er breytileg frá einu vatni til annars. Yfirleitt eru vötn á okkar breiddargráðum næringarlítil, köld og fremur djúp (oligotroph), og því eðlilegt að ég haldi mig við þann flokk vatna. Það sem er þessum vötnum sameiginlegt er, að þau innihalda lítið af næringarsöltum og hafa þar af leiðandi litla framleiðslu á

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.