Náttúrufræðingurinn - 1972, Síða 36
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
1 12
4. mynd. Grand
Teton — stórfeng-
leg fjallakeðja við mis-
gengi skammt suður
af Yellowstone. Tind-
arnir rísa meira en
2000 m yfir sléttuna.
reyndar. Meginstefnan gagnvart þeirn vanda, sem af ferðamanna-
straumnum hlýzt, virtist mér vera að þoka sem mestu af þjónustu-
starfsemi út fyrir mörk þjóðgarðanna, bæta þá aðalvegi, sem fyrir
eru, en varast nýlagningu akbrauta um vegleysur, sem ])á eru að-
eins opnar gangandi fólki, sem flest fyfgir mörkuðum stígum.
Áform eru uppi um að loka ákveðnum leiðum fyrir einkabílum,
en taka upp almenningsfarartæki í staðinn tif eftirsóttra staða utan
aðafumferðaræða. Mikif áherzla er lögð á vef unnið aðafskipulag
fyrir hvert friðfýst svæði, þar sem byggt er á rannsóknum og sam-
starfi margra aðila og endurskoðun skipulagsins með vissu milli-
bili. Stærstu svæðin, einnig utan þjóðgarðanna, sem ósnortin eru
af allri mannvirkjagerð, eru sett undir sérstaka lagavernd, sem
stefnir að því, að maðurinn sé þar aðeins gestur án tefjandi vist-
lægra áhrifa.
Vistfræði (ökófógía) kernur að sjálfsögðu í vaxandi mæli við
sögu náttúruverndar í þjóðgörðunum, og vísindalegt markmið með
verndun þeirra er ekki sízt í þágu vistfræðirannsókna í framtíðinni.
Þeir eiga að haldast sem svæði, þar sem áhrifa mannsins gæti lítið
og hægt verði að nota til samanburðarathugana og varðveizlu teg-
unda og arfstofna, sem annars yrðu útdauða fyrr en varir.