Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1972, Síða 46

Náttúrufræðingurinn - 1972, Síða 46
120 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Augljóst er, að litlu skiptir jökla, þótt vetur séu kaldir. Afkoman leggst síðan með þunga sínum á jökulinn, fer í bylgjum niður hann, og veldur hreyfingu hans. Því ætti að vera samband milli veðurfars og gangs í jöklum. Ef ákoman er meiri en leysingin, er afkoman jákvæð, jökullinn vex og ætti því að ganga fram, hörfa hins vegar, ef leysing er meiri en ákoman, og standa í stað, ef leysing er jöfn ákomunni; tekjur hrökkva aðeins fyrir gjöldum. En þetta sam- hengi er miklu flóknara en margan grunar. Viðbrögð hinna ýmsu jökla við afkomu sinni eru gjörólík. Á afmörkuðu svæði þar, sem ætla mætti, að veðurfar væri svipað, ganga surnir jöklar fram, en aðrir liopa. Sums staðar má kannski skýra slíkan mun í hegðun jökla með sérkennum í staðbundnu veðurfari. Oftast er þó skýr- ingar að leita í eiginleikum jökulsins svo sem halla, lögun, stærð, hraða og vatnsrennsli undir jökli. Segja má, að jöklar með tiltölu- lega stórt ákomusvæði séu næmir fyrir breytingum í vetrarúrkomu. Hins vegar eru jöklar með stór leysingarsvæði næmir fyrir breyt- ingum í sumarhitastigi. Hver jökull bregst við veðurfarsbreytingu á sinn hátt. Aflfræðileg vandamál taka við af hinum veðurfræði- legu. Veðurfarið er síbreytilegt frá ári til árs, og í takt við það verða sveiflur í afkomunni. Eitt ár getur afkoman verið jákvæð og næsta ár neikvæð. Yfir langt árabil hefur þó mátt greina langtímasveiflur í veðurfari, t. d. hlýnandi veðráttu á fyrri hluta þessarar aldar. Hinar tíðu smásveiflur verða oftast ekki greindar í viðbrögðum jökulsins. Þeir eru svo tregir til svars, að þeir virðast oftast nær eingöngu skeyta um langtímasveiflurnar, og einnig er töluvert tímavik milli sveiflunnar og svörunar jökulsins. Brattir jöklar, sem hreyfast hratt, bregðast skjótar við sveiflum í afkomu sinni en flatir jöklar og hægfara. Að öðru jöfnu má segja, að litlir jöklar séu röskir en stórir jöklar svifaseinir. Hinir síðar- nefndu virðast eingöngu bregðast við stærstu áföllum í afkomu og helzt ekki öðru en langvinnu hallæri eða stærstu veðurfarssveifl- um. Litlir jöklar ættu því að vera næmustu veðurfarsmælarnir, en stærri jöklar grófari. Er því varasamt að reyna að lesa veðurfarsbreyt- ingar úr gögnum, sem til eru um hop og framskrið einstakra jökla. Þar sem mælingar finnast á fjölmörgum jökulsporðum á svæði, eins og t. d. Vatnajökli, má liins vegar túlka niðurstöðurnar tölfræði- lega. Vegna tímaviks milli ákomubreytingar og viðbragða jökulsins

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.