Náttúrufræðingurinn - 1977, Side 10
inis L.), sem er algengasta ygluteg-
undin á Islandi, og veldur lnin stund-
um skaða á túnum og graslendi (gras-
maðkur). Flestar yglur annarra teg-
unda hafa 35 mm vænghaf eða meira.
Sandyglan er auðgreind frá jarðygl-
unni og grasyglunni, þar sem væng-
mynstur þessara tegunda er ólíkt.
Jarðyglan hefur rauðgula eða rauð-
leita vængi með mismunandi áberandi
flikrum. Á framvængjunum má yfir-
leitt greina nokkra flekki, sem eru
dekkri en grunnlitur vængjanna.
Grasyglan líkist meira sandyglunni,
en er þó með miklu grófgerðari og
rneira áberandi Ijósar rákir og flekki
á framvængjum. Afturvængir eru Ijós-
ir, en dökkna út til jaðranna. Grunn-
litur á framvængjum sandyglu er ým-
ist gulbrúnn eða dökkbrúnn og væng-
mynstur mun fíngerðara en á gras-
yglu og stundum ógreinilegt. Aftur-
vængir eru einlitir, grábrúnir (1.
mynd).
Flest bendir lil þess, að útbreiðsla
sandyglu sé mjög takmörkuð á ís-
landi og að tegundin sé háð ákveðnu
kjörlendi. Svo virðist sem lirfurnar
þurfi lausan og þurran sand til að
grafa sig í og auk þess elftingu til að
nærast á. Ætla má, að tegundin geti
fundist víðar á söndunum sunnan-
lands, en á þeim hefur mjög takmörk-
uð söfnun skordýra farið fram.
HEIMILDIR
Pelersen, B., 1956: Hymenoptera. — Zool. Wolff, AT. L., 1971: Lepidoptera. — Zool.
of Icel. III, Part 49-50: 84-85. of Icel. III, Part 45: 107-108.
Wolff, N. L., 1970: Hypocoena dispersa
n. sp. (Lep., Noctuidae) from Iceland.
- Ent. Mcddr. 38: 215-221.
S U M M A R Y
Photedes stigmatica ssp. dispersa Wolff (Lepidoptera, Noctuidae)
rediscovered in Iceland
by Erliíig Ólafsson,
Zoological Institute, Helgonaviigen 3, 223 62 Lund, Sweden,
and Hálfdan Björnsson,
Kvísker, Örcefi, A.-Skaft., Iceland
Iti 1937 a single specimen of a noctuid
species that later proved to be Photedes
stigmatica Ev., was captured at Kópasker,
N.-Iceland. This was the only Icelandic
record. The species was previously known
from northern Asia (Wolff, 1971).
In 1976 the species was rediscovered in
Iceland, when 150—200 specimens were
collected and observed at Skeidarársand-
ur, S.E.-Iceland (Ieg. Hálfdan Björnsson).
Both imagines and juvenile stages were
found on three occasions, June 26th and
fuly Ist and 4th. They were collected in
sparse vegetation on loose sandy ground
witli Juncus arcticus as a dominant plant.
The moths were mainly sitting on Juncus
and the larvae were found in the sand
below, where they were observed feeding
on Equisetum sp.
The parasitic wasp Opion luteus L.
(Ichneumonidae) was found to be a para-
site of the Photedes larvae.
120