Náttúrufræðingurinn - 1977, Síða 31
m. a. vegna þess að það líktist sjávar-
setlögum, sem ég hafði séð annars
staðar, og ákvað ég því að athuga
hvort þarna væri að finna steingerð-
ar skeljar.
Ekki reyndist Jrarna um auðugan
garð að gresja, en eftir u. Ji. b. li/2
klst. pjakk með hamri og meitli tókst
mér loks að grafa upp hluta af skel,
sem Leifur Símonarson sagði mér síð-
ar vera af smyrslingi (3. mynd). Þessi
fundur Jrykir mér staðfesta að Jrarna
sé um sjávarset að ræða. Lega Jress,
neðst í eldri grágrýdsmynduninni,
bendir til þess að J:>að hafi myndast
á svipuðum tíma og Búlandshöfða-
lögin á norðanverðu nesinu og sé ef
til vill hluti af þeim. Búlandshöfða-
lögin finnast, sem kunnugt er, í fjöll-
unum frá Grundarfirði til Ólafsvíkur,
en fram að Jressu hafa þau ekki fund-
ist á sunnanverðu nesinu.
Áhugamannafélag um stjörnuskoðun
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness var
stofnað 11. mars 1976 og eru félagar nú
43 að tölu. Tilgangur félagsins er að efla
kynni áhugamanna um stjörnuskoðun og
veita þeim aðstöðu til að sinna hugðar-
elni sínu.
Félagið liefur aðgang að stjörnusjónauka
Valhúsaskóla og annast rekstur hans. Sjón-
auki Jressi er spegilsjónauki af Schmith-
Cassagrain gerð og er þvermál spegils 35
cm, f. 1:20, framleiðandi Celestron. Marg-
ir félagar eiga stjörnusjónauka, sem þeir
nota til athugana. Þá hafa félagar einnig
fengið aðgang að stjörnusjónauka Há-
skóla íslands.
Auk stofnfundar og aðalfundar hafa
verið haldnir fjórir almennir félagsfundir
og flutt Jtar erindi um Mars (Ágúst Guð-
mundsson), um vígahnött, sem sást yfir
íslandi í ágúst 1976 (Þorsteinn Sæmunds-
son), um dulstirni (Þórir Sigurðsson) og
um svarthol (Einar Guðmundsson).
Mjög góð skilyrði hafa verið til stjörnu-
athugana í vetur og hefur sjónauki Val-
húsaskóla verið mikið notaður. Hinn 21.
nóvemher fannst blossastjarna í stjörnu-
merkinu Litla Ref (Vulcepula) og náði
hún birtustigi 6,2. Fylgdust félagar
stjörnuskoðunarfélagsins vel með henni
og hefur athugunum þeirra á birtustigi
hennar verið safnað saman.
Félagið beitir sér nú fyrir smíði hvolf-
Jtaks yfir sjónaukann og mun Jrað bæta
mjög aðstöðu til athugana. Áætlað er, að
hvollþakið verði komið upp fyrir næsta
haiist.
Stjórn félagsins skipa Jteir Þorsteinn Sæ-
mundsson, stjarnfræðingur, sem er for-
maður, Sigurður K. Árnason, liúsasmíða-
meistari, gjaldkeri og Sigfús Thorarensen,
verkfræðingur, ritari.
Sigfús Thorarensen.
141