Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1991, Side 7

Náttúrufræðingurinn - 1991, Side 7
Kristinn J. Albertsson Um iridíum, eldgos og loftsteina INNGANGUR Saga jarðar er skráð í jarðlög og má lesa þá sögu með því að skoða jarð- lögin, eiginleika þeirra og innihald. Meðal þess, sem þar er að finna, eru upplýsingar urn sögu og þróun lífríkis- ins og umhverfi þess á jörðinni. Sú saga hefur ekki alltaf verið átakalaus og hvað eftir annað hefur það komið fyrir, að heilar ættir lífvera hafa dáið út og nýjar þróast og orðið ráðandi. Sumar breytingarnar má segja, að hafi verið mjög snöggar en í öðrum tilvik- um hafa þær verið hægari. Suinar slík- ar lífríkisbreytingar, sem koma fram í útdauða fjölda tegunda, hefur verið reynt að skýra með geimættuðum fyr- irbærum, en steingervingafræðingar og reyndar margir aðrir jarðfræðingar hafa yfirleitt verið lítt hrifnir af slíkum tilraunum og fremur kosið að leita or- sakanna í umhverfisbreytingum, sem átt hafa sér stað, t.d. í breyttri sjávar- stöðu. Á 1. mynd sést glögglega, að stærstu lífríkisbreytingarnar verða samtímis róttækum breytingum á sjáv- arstöðu. Mörk krítar og tertíers, mót miðlífs- aldar og nýlífsaldar, eru sannarlega aldaskil. Fjölmargar dýrategundir dóu þá út og aðrar urðu til. Sumir telja, að um 70% af þeim lífverum, sem lifðu á krítartímabilinu hafi dáið út (Surlyk 1980). Þar sem það yrði allt of langt mál að telja allar þær tegundir lífvera, sem dóu út í lok miðlífsaldar, verður látið nægja að geta um helstu breyt- ingar. Skriðdýrin komu fram í lok fornlífsaldar og þróuðust sumir ætt- bálkar þeirra mjög ört á miðlífsöld. Fiskeðlur lifðu í sjó, flugeðlur í lofti og risaeðlur á landi. Allar hurfu þær af sjónarsviðinu í lok miðlífsaldar. Tveir ættbálkar smokkfiska, ammon- ítar og belemnítar, sem höfðu verið einkennisdýr í heimshöfum iniðlífsald- ar, urðu aldauða, svo og ýmsar kóral- tegundir og samlokur, ýmsar örverur, einfrumungar og götungar. Einnig hrakaði armfætlingum mjög oj* fækk- aði á þessum tímamótum. Á hinn bóginn fjölgaði fiskum mjög um þetta leyti sem og kuðungum og skeljum. Spendýr, sem komu fyrst fram á mið- lífsöld, urðu ekki áberandi fyrr en á tertíer en þróuðust þá mjög hratt. Skordýr voru komin fram á miðlífsöld en þróuðust mjög ört í byrjun tertíers. Af gróðri er það helst að segja, að dulfrævingar komu fram á miðkrít og urðu strax ríkjandi í gróðurríkinu. Far bar mest á lauftrjám. Grös og blóm- plöntur þróuðust ákaflega ört í byrjun tertíers og má segja að sú þróun hafi skipt sköpum fyrir þróun grasbíta annars vegar og skordýra hins vegar (sbr. Þorleif Einarsson 1985). Enda þótt yfirleitt sé talað um að þessi umskipti í lífríkinu hafi verið mjög snögg, gerðust þau ekki á auga- bragði. Sneggst eru umskiptin talin hafa verið meðal kalkþörunga og ann- Náttúrufræðingurinn 61 (1), bls. 1-15, 1991. 1

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.