Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1991, Side 12

Náttúrufræðingurinn - 1991, Side 12
3. mynd. Yfirlitskort sem sýnir helstu loftsteinagíga sem þekktir eru á jörðu. (Einfaldað frá Grieve 1987 og Smit 1991). 77;e distríbution of the woríd’s best known impact craters on land (Modified from Grieve 1987 atul Smit 1991). miklar undirtektir. Hér virðist líka eitthvað hafa skolast til því að elsta berg á Islandi er ekki nema um eða innan við 15 milljón ára gamalt, en tertíer hófst fyrir um 65 milljónum ára. Rétt er að hér komi fram, að Whipple mun fremur hafa sett þetta fram sem vangaveltur, en að þarna væri alvarleg vísindaleg tilgáta á ferð- inni. Pá hefur verið leitt getum um, að óvirkir neðansjávarhryggir og víð- feðm sléttlend neðansjávarflæmi geti einnig verið afleiðing þessa atburðar, en í Ijós hefur komið, að þessi neðan- sjávarfyrirbæri eru öll eldri en 100 milljón ára og stenst það því ekki. Helst gæti ummerkja slíks árekstrar verið að leita á sléttum eða hafsbotns- flæmum á djúpsjávarbotni í norðvest- urhluta Kyrrahafs (Rogers 1982). Uppástungur hafa ennfremur kom- ið fram um, að ýmsir þekktir loft- steinsgígar á landi geti hafa myndast við þennan árekstur. Þeirra á meðal eru Kara- og Ust-Kara gígarnir í Sovétríkjunum (sbr. Koeberl o.fl. 1990). Þeir eru á strönd Karahafs rétt við árósa Karaárinnar. Karagígurinn er alveg á þurru landi en hinn, Ust- Karagígurinn er að mestu neðansjáv- ar. Margt er á huldu um myndun og stærð þessara fyrirbæra, en Kara-gíg- urinn er talinn hafa verið um 65 km í þvermál og Ust-Karagígurinn allt að 70 km. Aldursákvarðanir sem gerðar hafa verið á gleri og endurkristölluðu bergi frá þessum gígum benda hins vegar til þess, að þeir hafi myndast fyrir rúmum 70 milljónum ára og þar með eru þeir útilokaðir. Mansongíg- urinn í Iowa í Bandaríkjunum virðist aftur á móti vera af sama aldri og um- 6

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.