Náttúrufræðingurinn - 1991, Page 12
3. mynd. Yfirlitskort sem sýnir helstu loftsteinagíga sem þekktir eru á jörðu. (Einfaldað
frá Grieve 1987 og Smit 1991). 77;e distríbution of the woríd’s best known impact craters
on land (Modified from Grieve 1987 atul Smit 1991).
miklar undirtektir. Hér virðist líka
eitthvað hafa skolast til því að elsta
berg á Islandi er ekki nema um eða
innan við 15 milljón ára gamalt, en
tertíer hófst fyrir um 65 milljónum
ára. Rétt er að hér komi fram, að
Whipple mun fremur hafa sett þetta
fram sem vangaveltur, en að þarna
væri alvarleg vísindaleg tilgáta á ferð-
inni. Pá hefur verið leitt getum um,
að óvirkir neðansjávarhryggir og víð-
feðm sléttlend neðansjávarflæmi geti
einnig verið afleiðing þessa atburðar,
en í Ijós hefur komið, að þessi neðan-
sjávarfyrirbæri eru öll eldri en 100
milljón ára og stenst það því ekki.
Helst gæti ummerkja slíks árekstrar
verið að leita á sléttum eða hafsbotns-
flæmum á djúpsjávarbotni í norðvest-
urhluta Kyrrahafs (Rogers 1982).
Uppástungur hafa ennfremur kom-
ið fram um, að ýmsir þekktir loft-
steinsgígar á landi geti hafa myndast
við þennan árekstur. Þeirra á meðal
eru Kara- og Ust-Kara gígarnir í
Sovétríkjunum (sbr. Koeberl o.fl.
1990). Þeir eru á strönd Karahafs rétt
við árósa Karaárinnar. Karagígurinn
er alveg á þurru landi en hinn, Ust-
Karagígurinn er að mestu neðansjáv-
ar. Margt er á huldu um myndun og
stærð þessara fyrirbæra, en Kara-gíg-
urinn er talinn hafa verið um 65 km í
þvermál og Ust-Karagígurinn allt að
70 km. Aldursákvarðanir sem gerðar
hafa verið á gleri og endurkristölluðu
bergi frá þessum gígum benda hins
vegar til þess, að þeir hafi myndast
fyrir rúmum 70 milljónum ára og þar
með eru þeir útilokaðir. Mansongíg-
urinn í Iowa í Bandaríkjunum virðist
aftur á móti vera af sama aldri og um-
6