Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1991, Síða 14

Náttúrufræðingurinn - 1991, Síða 14
tíma í byrjun tertíertímabilsins. Þetta frávik er talið geta spannað tímabil allt frá um 7000 árum og upp í um 150.000 ár (Officer & Drake 1983 og 1985). Þegar setlagafræðilegar upplýs- ingar frá ýmsum stöðum jarðar (ít- alíu, Spáni, Texas, Kyrrahafi) voru endurskoðaðar kom í ljós, að enda þótt tekið væri tillit til upphræringar setlaga af völdum lífvera, kemur irid- íumfrávikið fram á þykktarbili sem er allt frá fáeinum cm og upp í nokkra tugi cm (sbr. Officer & Drake 1985). Rannsóknir á DSDP (Deep Sea Drill- ing Project) borkjörnum frá úthafs- botni hafa leitt í ljós, að á borstað 524, sem er í austurhluta Suður-Atl- antshafs kemur iridíumfrávikið fram um 40 cm neðan við sjálf mörk krítar og tertíers, í borkjarna frá borstað 465, sem er í Norðvestur-Kyrrahafi kemur frávikið fram um 30 cm fyrir ofan mörkin. Sé miðað við setmynd- unarhraða í úthöfunum er iridíumfrá- vikið um 80.000 árum eldra en mörkin í Suður-Atlantshafi, en um 100.000 ár- um yngra í Norðvestur-Kyrrahafi. Það hefur einnig verið bent á frávik í þeim lögum sem geyma mörkin milli krítar og tertíers í Alabama í Bandaríkjun- um. Iridíumfrávikið finnst þar um 2 m ofan við mörkin sjálf (sbr. Albritton 1989). Nýjustu rannsóknir sýna svo að t.d. í Ölpunum er iridíumfrávikið ekki einfalt heldur þrefalt og er eitt frávik- ið nákvæmlega á mörkum krítar og tertíers en hin rétt ofan við og rétt neðan við þau (Graup & Spettel 1989). Hér verður að taka fram, að stein- gervingafræðin segir okkur að undan- fari þessa snöggdauða var stighnignun fjölmargra tegunda sem staðið hafði yfir í nokkrar milljónir ára. Sé loft- steinstilgátan sönn, hefur loftsteinn- inn ekki ráðið úrslitum heldur hefur hann miklu fremur greitt náðarhöggið („coup de gruce“) ýmsum þeim lífver- um, sem hvort eð er voru hætt komn- ar. Enn er ótalið atriði, sem erfitt hefur verið að skýra í ljósi loftsteinstilgát- unnar. Hér er átt við steindasamsetn- ingu leirlaganna á mörkum krítar og tertíers. Samkvæmt Alvarezfeðgunum og samstarfsmönnum þeirra eiga þessi leirlög að vera gerð af rykinu sem þyrlaðist upp við áreksturinn og féll síðan til jarðar. Því má ætla að sam- setning þess hljóti að vera einhvers konar blanda af geimættuðum berg- tegundum og bergi jarðskorpunnar. í fiskileirnum í Danmörku er hins vegar aðeins um eina leirsteind að ræða þ.e. smektít. Þessi leirsteind er einnig ákaflega áberandi í yngsta krítarkalk- inu í Norðvestur-Evrópu. Hún er sennilegast að miklu leyti tilkomin vegna veðrunar og ummyndunar á gosösku en að sumu leyti úr alkalísk- um jarðvegi eins og svo mikið af því smektíti sem sest til á úthafsbotni í dag. Sú túlkun Alvarezfeðganna og samstarfsmanna þeirra, að smektítið í fiskileirnum sé tilkomið vegna um- myndunar á gleri því sem myndaðist við að berg bráðnaði við árekstur loft- steinsins, er talin harla ósennileg (Officer o.fl. 1987). Alvarezfeðgarnir og samstarfsmenn þeirra urðu til þess í upphafi að nefna þann möguleika að iridíumfrávikið væri tilkomið vegna jarðneskrar eld- virkni. Eitt ógurlegasta sprengigos, sem orðið hefur hér á jörð, átti sér stað á eynni Krakatá í Indónesíu árið 1883. Áætlað er að þá hafi um 18 km3 af gosösku og ryki þeyst upp í loftið og þar af hafi 4 km3 af ryki náð alla leið upp í heiðhvolfið. Þar hringsólaði rykskýið í rúm tvö ár, dró úr sólarljósi og olli kvöldroða á himni sem eftir var tekið um víða veröld. Þeir áætluðu að áhrifin í andrúmslofti, sem loftsteinn- 8
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.