Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1991, Page 15

Náttúrufræðingurinn - 1991, Page 15
inn hefði valdið, hefðu verið um það bil eitt þúsund sinnum meiri en þau sem sprengigosið í Krakatá, árið 1883, olli en þar sem ekki er vitað um neitt slíkt ógnargos í gervallri jarðsögunni höfnuðu þeir þeim möguleika að irid- íumfrávikið væri afleiðing slíks. Aðrir jarðfræðingar urðu þá til að benda á upplýsingar um stærsta eldgos í jarð- sögunni þ.e. eldgosið í Toba á Súm- ötru fyrir um 70.000 árum og að það hafði í för með sér 400-föld áhrif í andrúmslofti miðað við Krakatágosið (Kent 1981). Nú má náttúrlega benda á að 400 er ekki sama og 1000 en ef til vill er það nógu nærri til þess, að ekki þarf endilega að hafna möguleikanum á hrikalegu eldgosi enda þótt engin merki slíks hafi enn fundist. Ekki er heldur, að því er séð verður, nauðsyn- legt að iridíumfrávikið hafi allt orðið til í einu eldgosi. Það gæti hafa komið upp og sest til á einhverju sérlega eld- virku tímabili og þá í mörgum eldgos- um. Enda hafa margir orðið til þess að benda á að eldvirkni í jarðsögunni virðist fremur bundin einhverjum ákveðnum virkniskeiðum en að hún sé alveg jafndreifð (sbr. Axelrod 1981 í Albritton 1989). Hér má svo bæta við að á þeim tíma, sem Alvarezfeðg- arnir og félagar skrifuðu grein sína, var ekki mikið vitað um hvernig hægt var að flytja iridíum í nægu magni til yfirborðs jarðar. Eftir Kíláeagosið á Hawaiieyjum árið 1983 varð mönnum ljóst (Zoller o.fl. 1983), að umtalsvert magn iridíums kemst upp í andrúms- loft í eldgosum, og má a.m.k. hugsa sér, að slíkt geti gerst þegar eldfjall situr ofan á heitum reit, sem hefur rætur djúpt niðri í möttli. Efnagrein- ingar á fínasta efninu (ryki) sem upp kom í eldgosinu í Kíláea sýna óvenju- lega mikið magn af iridíum þ.e. allt að 17.000-falt magn þess sem finnst í bas- alti á Hawaiieyjum. Zoller og samstarfsmenn hans hafa bent á að áætlað væri, að magn irid- íums í setlögunum á mörkum krítar og tertíers væri um 200.000 tonn og þar sem aðeins hefðu komið upp 9-90 kg af iridíum í Kíláeagosinu 1983 væri ljóst, að mun stærra eldgos hefði þurft til að framleiða nauðsynlegt iridíum. Nærtækast finnst þeim að benda á Deccanbasaltsvæðið á Vestur-Ind- landi. Samsætuhlutföll osmíums (l87Os/ 186Os) í fiskileirnum í Danmörku þykja fremur benda til uppruna frá loftsteini en þó er ekki talið mögulegt að úti- loka að osmíumfrávikið sé komið úr möttli jarðar. Breytingar annarra samsætuhlutfalla t.d. neódymíums (143Nd/144Nd) og strontíums (87Sr/8í’Sr), sem ákvörðuð voru í leir frá nokkrum stöðum þ.á.m. úr úthafsseti, eru mjög svipaðar breytingum á iridíummagni í sömu lögum og er sú ályktun dregin þar af, að mestallur leirinn sé af jarðneskum uppruna og að frávik í magni þessara efna megi skýra jafnt með geimættuðum uppruna sem upp- runa úr möttli jarðar. Þess ber að geta að flestar þessar ályktanir voru dregn- ar fyrir Kíláeagosið 1983. Hins vegar má telja að ákveðin tvöfeldni virðist hafa ríkt varðandi túlkun á iridíumfrá- vikinu og svo á arseniki og antimoni. Loftsteinsmenn töldu að þar sem irid- íumfrávikið væri á marktækan hátt meira en meðaltalstölur fyrir jarð- skorpuna sýna, en væri sambærilegt við það sem fyndist í loftsteinum hlyti þetta umframiridíum að vera þaðan komið. Magn arseniks og antimons við mörk krítar og tertíers er aftur á móti mun meira en hvort tveggja, meðaltalsmagn fyrir jarðskorpuna og magn í loftsteinum og þar af leiðandi er loftsteinn varla fýsilegur möguleiki til útskýringa lengur (Officer & Drake 1985). Þriðji upprunamöguleikinn, 9

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.