Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1991, Qupperneq 25

Náttúrufræðingurinn - 1991, Qupperneq 25
Steingervingar og berg, sem er að mestu leyti kvartsít, sandsteinn og leirsteinn frá fornlífs- og miðlífsöld, gefa til kynna að Falklandseyjar séu líklega að uppruna til meginlandshluti sem brotnaði af Afríku suðaustan megin, fyrir löngu og hefur rekið á núverandi stað þeirra eftir tiltölulega flóknum rekleiðum. Eyjaklassinn skiptist í tvær stórar og 778 litlar eyj- ar, sem liggja milli 51° S og 53° S og ná yfir 12.200 knr svæði. Hæsti tindurinn er 705 m yfir sjávarborði. Suður-Am- eríka er 645 km í vestri. I janúar er hásumar á eyjunum og mjög svipað sumri á Islandi. Dagleg hitasveifla getur verið mikil, enda var beinlínis heitt (16° C) í tvo daga í höf- uðborginni, Stanley, en hitinn fór nið- ur í 5° C að nóttu til þegar við komum suður til Sea Lion-eyju (Sæljónaeyju). Fað var oftast vindur eða gola, rigning á köflum, en við vorum svo heppin að það var sólskin mestan hluta tímans. Meðalúrkoman á ári er 610 mm í Stanley. Hins vegar er árlega hita- sveiflan lítil. Ólíkt því sem er á íslandi er oft logn á veturna en hvassviðri og stormar aðeins af og til. Meðalhita- stigið er 9° C í janúar og 2° C í júlí. Sýnir það hafræn áhrif á loftslagið. Meðalvindhraðinn er 15 hnútar (gola) en það er hvassviðri að meðaltali fjóra daga í mánuði. Með hvassviðrinu koma oft flækingsfuglar, kringum 100 luglategundir eru þekktar í þeim hópi. Falklandshafstraumurinn, sem kemur úr Hornhöfðastraumnum, um- lykur eyjarnar og þar sem þessi straumur og Brasilíustraumurinn mæt- ast eru gjöful fiskimið. Þar er mikið af ljósátu, rækju og smokkfiski. Það er kvótakerfi á fiskveiðum, sem gildir innan við 75 mílur frá landi en utan þess svæðis eru 600 til 700 fiskitogarar að veiðum, aðallega frá öðrum lönd- um. Smokkfiskurinn selst í Japan, Miðjarðarhafslöndum, Bretlandi og Skandinavíu. FUGLALÍF Á FALKLANDSEYJUM Sextíu og ein fuglategund verpir á Falklandseyjum, þar af eru 14 and- fuglar, 6 fýlingar og 5 mörgæsir. Víða er viðeigandi kjörlendi fyrir sjávar- og vatnafugla, þarna eru margar grunnar tjarnir auk kletta og sanda við strönd- ina. Til dæmis byggir svaltrosi (Diom- edea melanophris) sér hreiður á klett- um við ströndina. Hreiðrið er aðal- lega úr leir og driti og eftir nokkurra ára notkun líkist það turni og situr unginn á toppnum. Þarna finnast eim- endur (Tachyeres) en ein af þeim (T. brachydactyla) er fræg fyrir að vera ófleyg. Pettingill rannsakaði áhrif loftslags á fuglana á Falklandseyjum (sjá Woods 1989, bls. 16-17). Vegna þess að árshitasveiflan er svo lítil byrja landfuglarnir að verpa snemma á vor- in. En vegna þess að eyjarnar eru skóglausar eru þar aðeins níu innlend- ir spörfuglar. Menn hafa flutt inn hvinvið (Ulex europaeus) og aðrar plöntur, sem dafna vel niðri í dölun- um þar sem húsin eru. Vegna þess er meiri möguleiki á að finna fljúgandi skordýr og einnig spörfugla eins og Falklandsþröst (Turdus falcklandii) en ella væri. Gjarnan verpa þessir l'uglar færri eggjum í hvert sinn en sama tegund gerir í Suður-Ameríku en líkamsstærðin er oft meiri. Vegna þess að veturinn er ekki eins storma- samur og kaldur og breiddargráðan gefur til kynna halda þessir fuglar kyrru fyrir allt árið. Mór er útbreiddur og gerði hann landnemunum á 18. öld kleift að byggja landið. Helsta eldsneytið til að hita upp húsin og að elda mat er enn- þá mór. Krækilyngstegundin Empetr- 19
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.