Náttúrufræðingurinn - 1991, Page 39
1. mynd. Teikning Moltke stiftamtmanns af bjúgnefju sem náðist að öllum líkindum á ís-
landi um 1820. Eintakið er nú glatað, en teikningin er varðveitt í Dýrafræðisafninu í
Kaupmannahöfn. Pied Avocet (Recurvirostra avosetta) drawn from a specimen probably
collected in Iceland ca. 1820. The specimen is now lost, but tlie drawing is preserved at the
Museum of Zoology in Copenhagen. Ljósm. photo Ib Petersen.
I Dýrafræðisafninu í Kaupmannahöfn er
varðveitt safn teikninga eftir E.C.L. Moltke
sem var stiftamtmaður á fslandi 1819-1823.
Teikningarnar eru alls 85 og gerðar af íslensk-
um fuglum meðan Moltke dvaldi hér á landi.
Ein þeirra er af bjúgnefju (1. mynd). Bjúgnefju
er þó hvergi getið í eldri ritum um íslenska
fugla og ekki hefur tekist að afla frekari upplýs-
inga um fugl þann sem Moltke teiknaði. Stefán
Stefánsson (1902) sá mynd af bjúgnefju hjá Her-
luf Winge dýrafræðingi, sennilega á námsárum
sínum í Kaupmannahöfn kringum 1890. Honum
var tjáð að myndin hafi verið gerð af H.P. Topp
eftir eintaki frá íslandi, en jafnframt að engar
frekari upplýsingar sé að hafa um fugl þennan.
Án efa er um eina og sömu teikninguna að
ræða. Pað er því hægt að leiða líkur að því að
bjúgnefja hafi náðst á fslandi á árunum 1819-
1823, sennilega í nágrenni Reykjavíkur.
Tríll (Burhinus oedicnemus)
Til trílaættar (Burhinidae) teljast
níu tegundir og verpa flestar þeirra á
suðurhveli. Varpútbreiðsla tríls er að
mestu bundin við miðbik Evrópu og
Asíu og hann er eina tegundin innan
trílaættar sem er reglulegur farfugl.
Helstu ættareinkenni eru stór gul
augu, langir gulir eða grænir fætur
með digrum ökklum og brúnleitur, lítt
áberandi fjaðrabúningur. Búsvæði
tegunda af þessari ætt er þurrlendi,
jafnvel hálfgerðar eyðimerkur. Fugl-
arnir eru aðallega á ferli að næturþeli
eins og margar eyðimerkurtegundir
og lifa mikið á bjöllum, eðlum og
jafnvel smávöxnum spendýrum.
Tríllinn verpur strjált í Evrópu (þó
ekki á Norðurlöndum), nyrst í Afríku
og suðvesturhluta Asíu. Honum fækk-
aði mjög á þessari öld vegna þess að
margar varplendur hans voru teknar
til ræktunar. Þær varpstöðvar trílsins
33