Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1991, Side 47

Náttúrufræðingurinn - 1991, Side 47
allt að 6500 km. Á vorin yfirgefur grálóa vetrarstöðvar í febrúar-mars í S-Afríku, í byrjun apríl í Marokkó, en ekki fyrr en síðast í apríl og byrjun maí á Bretlandseyjum. Grálóa er alltíður flækingur hér á landi og hefur aðallega sést á haustin og að vetrarlagi. Grálóa var áður nefnd strandlóa (sbr. Bjarni Sæ- mundsson 1936). 1. Eyrarbakki, Árn, 25. september 1892 tveir (imm RM2072). Nielsen (1918). í fyrri heimildum hefur komið upp ruglingur varð- andi þetta tilvik. Benedikt Gröndal (1895a) segir grálóa hafa náðst í nóvember(?) 1892 og er það skv. aðfangaskrá Náttúrugripa- safnsins. Aðrir höfundar nefna 25. septem- ber sem fundardag (sjá t.d. Slater 1901), en geta þess ekki að tveir fuglar hafi sést. Finnandinn (Nielsen 1918) segir hins vegar að tveir fuglar liafi sést, en aðeins annar þeirra náðist, og er farið eftir upplýsingum hans í þessu tilviki. 2. Reykjavík, febrúar 1895 (RM, hent 1928). Bjarni Sæmundsson (1936). I aðfangaskrá Náttúrugripasafnsins er getið um grálóu sem safninu áskotnaðist í febrúar 1895, en ekki kemur fram hvar fuglinn fannst. I að- fangaskrána hefur síðar verið skrifað: „skemmdist 1928“. Sennilega hefur fuglin- um þá verið hent. Benedikt Gröndal (1895a) minnist ekki á þennan fugl í fugla- tali sínu, en í prentaðri skýrslu um starf- semi Nátlúrugripasafnsins 1894-95 kemur hins vegar fram að grálóa hafi verið sett upp á vegum þess á árinu (Benedikt Grön- dal 1895b). Slater (1901) segir grálóu hafa náðst í nágrenni Reykjavíkur og hefur hann sennilega fengið þær upplýsingar á safninu. 3. Urðir á Heimaey, Vestm, 31. ágúst 1950 (ad RM2073). Pétur Guðjónsson. 4. Seltjarnarnes, Kjós, 20.-22. apríl 1955 (imm). Agnar Ingólfsson & Arnþór Garð- arsson (1957). 5. Sandgerði - Garður, Gull, 29. desember 1957 - byrjun janúar 1958, tveir. Vilhjálm- ur .Lúðvíksson o.fl. 6. Fuglavík á Miðnesi, Gull, 27. desember 1959. Þorsteinn Einarsson. 7. Breiðabólsstaður á Álftanesi, Kjós, 2. jan- úar 1962. Jón Baldur Sigurðsson. 8. Garðskagi, Gull, 31. ágúst - 16. september 1971. James R. Wilson o.fl. (sbr. Morrison 1971). 9. Akrar í Hraunhreppi, Mýr, 2. september 1971. James R. Wilson (sbr. Morrison 1972). 10. Neskaupstaður, S-Múl, um 1.-5. október 1971 (cf imm RM2074). Skv. Hjörleifi Guttormssyni. 11. Sandgerði, Gull, 30. september - 1. októ- ber 1973 (cf imm RM2075). Finnur Logi Jóhannsson, Jóhann Oli Hilmarsson, Olaf- ur K. Nielsen, Skarphéðinn Pórisson o.fl. 12. Brimurð á Heimaey, Vestm, 17. september 1974 (J imm; hamur í einkasafni, bein RM8473). Ingi Sigurjónsson. 13. Staður í Grindavfk, Gull, 28. ágúst 1976 (Cf ad RM6237) og 28.-29. ágúst 1976 (9 ad RM6252). Kristinn H. Skarphéðinsson, Ólafur K. Nielsen og Skarphéðinn Þóris- son. 14. Hvalsnes - Garður, Gull, 30. september - 14. október 1979 tveir, 9. desember einn. GP og KHS (1980). 15. Seltjarnarnes, Kjós, 6.-10. október 1979. GP & KHS (1980). 16. Höfn í Hornafirði, A-Skaft, 24. júlí 1980 tveir (ad og imm). GP og KHS (1983). 17. Staður í Grindavík, Gull, 27. október 1980. GP & KHS (1982). Alls sást a.m.k. 41 fugl 1981-89, langflestir í grennd við Sandgerði, en grálóa má heita árviss gestur á þeim slóðum (GP & KHS 1983, GP & EÓ 1984-89, GP o.fl. 1991a,b). Hantszch (1905) segir að J.V. Havsteen á Akureyri hafi oft séð grálóur á Norðurlandi og fengið þær í hendur. Sonur þess síðarnefnda, Júlíus Havsteen (1931), segir skv. athugunum sem hann hefur úr fórum föður síns, að hann hafi séð einn fugl á Oddeyri 1885. Bjarni Sæ- mundsson (1936) getur þessa tilviks einnig, en misritun virðist hafa orðið hjá honum því hann segir að árið 1895 hafi grálóa sést á Norðurlandi og vitnar í áðurnefnda grein Júlíusar. Þar sem upplýsingar um ofangreinda fugla eru óná- kvæmar, sleppti ég þeim úr yfirlitinu. Grálóur hafa fyrst og fremst sést á Suðvesturlandi, aðallega á Rosm- hvalanesi, en einnig í Grindavík og Innnesjum (6. mynd) og verið árvissar frá 1979. Stakar grálóur sáust í Fljóts- dal í maí 1981 (GP & KHS 1983) og Biskupstungum í október 1986 (GP & EO 1989a), hinar sáust nær allar í fjörum. Fyrstu fuglarnir sáust í lok júlí, en flestir virðast koma til landsins 41

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.