Fréttablaðið - 27.05.2009, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 27.05.2009, Blaðsíða 2
2 27. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR SKIPULAGSMÁL „Við búum alveg hræðilega,“ segir Már Vilhjálms- son, rektor Menntaskólans við Sund. Vegna plássleysis stendur til að rífa eina álmu skólans og byggja nýtt hús. Rífa á einnar hæðar byggingu sem nefnd er Langholt og liggur meðfram Gnoðarvogi. Í stað henn- ar á að reisa þriggja hæða hús og tengibyggingu yfir í önnur hús menntaskólans. Verði framkvæmd- irnar að veruleika munu þær, að sögn Más, leiða til þess að húsnæði skólans að frátöldum íþróttasaln- um stækkar úr um 4.500 fermetr- um í um 6.700 fermetra. Að sögn Más hefur MS allt frá því hann var stofnaður fyrir fjöru- tíu árum verið í bráðabirgðahús- næði, fyrst við Tjörnina í Reykja- vík og síðan inni í Vogum í húsnæði sem hannað var sem barna- og unglingaskóli. „Við erum ekki í húsnæði sem er smíðað sem fram- haldsskóli og þar að auki er enginn skóli á landinu sem býr jafn þröngt eins og við nema Kvennaskólinn í Reykjavík,“ segir Már. Í dag er MS 760 til 770 nemenda skóli en eftir stækkun getur hann tekið við 900 til 950 nemendum. Margvíslegar athugasemdir og ábendingar bárust til borgar- innar eftir kynningu á stækkun- inni. „Harðasta gagnrýnin sner- ist um umferðina inn í hverfið. Þetta voru eðlilegar athugasemd- ir og það mun hafa verið brugðist við þeim,“ segir Már sem segir þó fjölmarga sem mættu á kynning- arfund hafa lýst ánægju með að byggja ætti við skólann og styrkja þar með hverfið. Sumir eru andvígir því að þessi gamla skólaálma eftir teikningu Einars Sveinssonar sé rifin. „Á tímum sem ljótar nýbyggingar standa auðar og ónotaðar, hvern- ig dirfist þið að rífa menningar- söguleg hús sem skarta því besta af okkar byggingarlist?“ segir til dæmis í bréfi Þorgeirs Guðmunds- sonar kvikmyndagerðarmanns. Húsafriðunarnefnd gefur grænt ljós á niðurrifið en segir að skoða beri hvort vernda eigi hús eftir sömu teikningu við Breiðagerðis- skóla. Már segir það sína skoðun að teikningar arkitekta eigi ekki að vera ávísun á að ekki megi hrófla við byggingum. „Jóhannes Kjarval málaði góðar myndir og slæmar myndir og er dæmdur af góðu myndunum. Langholtið er hræðileg bygging. Þar að auki er Langholtið í þannig ástandi að ef við ætluðum að hafa það áfram þá myndi kosta líklega um 100 milljónir að gera það upp þannig að það myndi uppfylla heil- brigðiskröfur og öryggiskröfur – en eftir sem áður yrði húsnæðið samt handónýtt.“ gar@frettabladid.is Rífa gömlu álmuna fyrir rúmbetri skóla Rífa á einn elsta hluta Menntaskólans við Sund og byggja margfalt stærra hús fyrir skólann. Sumir eru andvígir niðurrifinu. Húsafriðunarnefnd segir niður- rifið í lagi en að skoða beri verndun sams konar álmu við Breiðagerðisskóla. MÁR VILHJÁLMSSON OG LANGHOLT Rektor Menntaskólans við Sund við gömlu álmuna frá 1957 sem rífa á til að greiða fyrir uppbyggingu skólans. Hræðilegt og handónýtt hús segir rektor. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN BREYTT ÁSÝND Hérna sést hvernig útlínur nýju byggingarinnar geta orðið miðað við gömlu álmuna. MYND/GLÁM-KÍM Lúkas, hefur þetta nokkuð stigið ykkur til höfuðs? „Nei, við erum bara með eitt stig svo við höfum ekki efni á því.“ Lúkas Kostic, nýr þjálfari Grindavíkur, var ánægður með fyrsta stig liðsins sem það náði með því að gera jafntefli við Val í fyrradag og sagði stigið sigur fyrir liðið. BANDARÍKIN, AP Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur útnefnt Soniu Sotomayor sem nýjan dóm- ara við Hæstarétt Bandaríkj- anna. Staðfesti öldungadeild Banda- ríkjaþings skipan hennar í emb- ættið verður Sotomayor fyrsti Bandaríkjamaðurinn af róm- ansk-amerískum uppruna til að taka við sem dómari við Hæsta- rétt Bandaríkjanna og þriðja konan. Hún tæki þá við af hinum frjálslynda David Souter sem hefur átt sæti í dómnum síðan árið 1990 en hættir sökum ald- urs síðar á árinu. Sotomayor verður 55 ára í næsta mánuði. Hún hefur verið dómari við áfrýjunarrétt vestra síðan árið 1998. Hún lauk lög- fræðiprófi frá Yale-háskóla og þykir frjálslynd í skoðunum líkt og Souter. - aa Obama skipar dómara: Soto mayor skip- uð í Hæstarétt EFNAHAGSMÁL Hver nefndarmaður í skilanefndum stóru bankanna þriggja kostar Fjármálaeftirlitið að meðaltali tæplega 3,5 milljón- ir króna á mánuði. Þetta má lesa úr tölum sem eftirlitið tók saman fyrir Fréttablaðið. Á fimm mánaða tímabili, frá október út febrúar, kostuðu skila- nefndirnar þrjár samtals rúmar 260 milljónir króna. Samanlagt eru fimmtán starfsmenn í skila- nefndunum, fimm í hverri. Ekki fengust upplýsingar um kostnað í mars og apríl, þar sem reikningar skilanefndarmanna vegna þessara mánaða eru ekki komnir fram. - bj Kostnaður við skilanefndir: Kosta 3,5 millj- ónir á mann HJÁLPARSTARF Hópurinn sem hefur verið á Gasasvæði Palestínu síð- ustu daga snýr heim í kvöld. Á þremur dögum tókst þremur stoð- tækjasmiðum á vegum Neyðar- söfnunar Íslands-Palestínu og OK Prosthetics að smíða alls 26 gervilimi á 24 fórnarlömb stríðs- ins í Palestínu. Sveinn Rúnar Hauksson, for- maður Íslands-Palestínu, segir mikla gleði hafa fylgt því að sjá fólkið ganga að nýju. Íslenski hópurinn var kvaddur með við- höfn af borgarstjóra og mættu margir limþeganna á athöfnina. Sveinn segir að vonir séu bundnar við að verkefnið haldi áfram. Um þúsund manns skorti útlimi á Gasasvæðinu. - kóþ Koma frá Palestínu í kvöld: Gáfu 26 gervi- limi á Gasa FRAMKVÆMDIR Steypuvinna við bíla- stæðahúsið sem rísa á við Tónlist- ar- og ráðstefnuhúsið við Austur- höfn hefst í dag. Í fyrsta áfanga verður botnplata hússins steypt en í hana fara 3.400 rúmmetrar af steypu. Ísleifur býst við að 24 steypubílar verði notaðir í verk- ið og að þeir þurfi að fara alls 400 ferðir. „Þetta verður gert í einum áfanga og við áætlum að verkið taki um sólarhring,“ segir Ísleif- ur Sveinsson, byggingastjóri hjá ÍAV, sem sér um framkvæmdir á svæðinu. Húsið verður á tveimur hæðum og bílastæðin um 1.600 talsins. - kh Steypuvinna við bílastæðahúsið á Austurhöfn hefst í dag: Steypubílar fara 400 ferðir VERKIÐ UNDIRBÚIÐ Verið var að undirbúa steypuvinnuna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON SAMFÉLAGSMÁL Hinn alþjóðlegi MS-dagur verður haldinn hátíð- legur í fyrsta sinn hér á landi í dag.Það er MS-félagið sem stend- ur fyrir deginum sem ætlað er að auka vitund um sjúkdóminn. Nokkrir af fremstu íþrótta- mönnum landsins hafa lýst yfir stuðningi við félagið og daginn. Af þessu tilefni ætlar MS-félagið að bjóða upp á dagskrá sem hefst í húsakynnum þeirra að Sléttu- vegi 5 klukkan 15. -hds MS-dagurinn á Íslandi: Haldinn í fyrsta sinn hér á landi Bankastjórar brátt fundnir Nefnd sem meta á umsóknir um stöðu seðlabankastjóra á að skila niðurstöðu sinni á morgun. Jóhanna Sigurðardóttir sagði á blaðamanna- fundi í gær að hún muni í framhaldi taka ákvörðun um hverjir verða ráðnir og verði það ljóst um eða upp úr næstu mánaðamótum. SEÐLABANKINN VIÐSKIPTI Líklegt er að deila Exista við skilanefndir gömlu bankanna um afleiðusamninga fari fyrir dómstóla, samkvæmt frétt Ríkissjónvarpsins. Þar kom fram að Exista hafi farið fram á lögbann til að koma í veg fyrir að þrettán milljarðar króna verði færðir af reikningum félagsins til gamla Kaupþings. Deilan stendur um gjaldeyris- afleiðusamning sem Exista gerði við Glitni og Kaupþing. Exista vill að samningarnir verði gerðir upp miðað við gengi krónunnar hjá Evrópska seðla- bankanum, en skilanefndir vilja miða við gengi Seðlabankans, samkvæmt frétt Ríkisútvarpsins. - bj Deila um afleiðusamninga: Exista vill lög- bann á færslu LÖGREGLUMÁL Innbrotsþjófar börðu úrsmið á áttræðis- aldri í andlitið og skildu hann eftir bundinn eftir að þeir rændu heimili hans á Seltjarnarnesi á mánudags- kvöld. Maðurinn kom að tveimur innbrotsþjófum þegar hann kom heim um klukkan 20 um kvöldið. Annar mannanna sló hann umsvifalaust í andlitið, og í kjöl- farið bundu mennirnir hann á höndum og fótum. „Ég er bara heppinn að lifa þetta af,“ sagði maður- inn í samtali við fréttavef Vísis. Hann treysti sér ekki til að ræða við Fréttablaðið í gær. Þjófarnir tóku um 60 úr og eitthvað af skartgripum áður en þeir hurfu á braut. Manninum tókst að losa sig eftir um tuttugu mínútur, og gat kallað eftir aðstoð. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar, en fékk að fara heim að skoðun lokinni. Maðurinn gat lýst öðrum árásarmanninum fyrir lögreglu. Hann er grannvaxinn maður um tvítugt, um 178 sentimetrar á hæð, með brún augu og virt- ist sólbrúnn á hörund. Hann var með bláan bakpoka úr grófu strigaefni. Mennirnir eru báðir Íslendingar. Húsráðandi taldi sig muna að annar mannanna hafi kallað hinn Marra, eða svipuðu gælunafni. Von var á fréttatilkynningu frá lögreglu vegna málsins seint í gærkvöldi, en hún hafði ekki borist þegar Fréttablaðið fór í prentun. - bj Úrsmiður á áttræðisaldri kom að innbrotsþjófum á heimili sínu á Seltjarnarnesi: Börðu og bundu húsráðanda BARÐASTRÖND Maðurinn sem ráðist var á sagðist heppinn að hafa lifað árásina af í samtali við fréttavef Vísis í gær. MYND/STÖÐ 2 SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.