Fréttablaðið - 27.05.2009, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 27.05.2009, Blaðsíða 42
22 27. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR sport@frettabladid.is > Fannar undir smásjá Emsdetten Skyttan efnilega, Fannar Þór Friðgeirsson, er þessa dagana að reyna að komast að hjá liði erlendis. Fjöldi liða hefur sýnt Fannari áhuga en málin ganga hægt fyrir sig enda hefur efnahagskreppan komið illa við mörg handknatt- leiksfélög sem þurfa að huga að styrktaraðilamálum áður en þau geta mikið hreyft sig á markaðnum. Eitt þeirra liða sem hafa áhuga á Fannari er þýska félagið Emsdetten sem landsliðsmarkvörð- urinn Hreiðar Levý Guðmundsson samdi við á dögunum. Veskið er þó í þynnri kantinum hjá félaginu þessa dagana og því hefur félagið ekki getað gert Fannari tilboð þó svo þjálfari félagsins hafi mikinn áhuga á leik- manninum. FÓTBOLTI Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari tilkynnti 22 manna hóp fyrir tvo leiki í und- ankeppni HM 2010. Íslenska liðið mætir Hollandi á Laugardalsvell- inum 6. júní kl. 18.45 og sækir síðan Makedóníu-menn heim til Skopje miðvikudaginn 10. júní. - óój LANDSLIÐSHÓPURINN: Markmenn Árni Gautur Arason, Odd Grenland 66 Gunnleifur Gunnleifsson, Vaduz 8 Varnarmenn Hermann Hreiðarsson, Portsmouth 84 Indriði Sigurðsson, Lyn 44 Kristján Örn Sigurðsson, Brann 36 Grétar Rafn Steinsson, Bolton 31 Bjarni Ólafur Eiríksson, Val 13 leikir Ragnar Sigurðsson, IFK Göteborg 11 Sölvi Geir Ottesen, SønderjyskE 4 Miðjumenn Brynjar B. Gunnarsson, Reading 67 Stefán Gíslason, Brøndby 27 Emil Hallfreðsson, Reggina 22 Birkir Már Sævarsson, Brann 13 Aron Einar Gunnarsson, Coventry 11 Pálmi Rafn Pálmason, Stabæk 11 Helgi Valur Daníelsson, Elfsborg 10 Theodór Elmar Bjarnason, Lyn 9 Eggert Gunnþór Jónsson, Hearts 3 Sóknarmenn Eiður S. Guðjohnsen, Barcelona 57 Heiðar Helguson, QPR 43 Arnór Smárason, Herenveen 5 Undankeppni HM 2010: Sölvi og Garðar eru í hópnum Það var létt yfir Ólafi Jóhannessyni, þjálfara karlalandsliðsins í fót- bolta, á blaðamannafundi í gær þegar hann tilkynnti 22 manna lands- liðshóp sinn fyrir leiki á móti Hollandi og Makedóníu. „Hollendingar koma örugglega hingað með það eina hugarfar að ná sér í þrjú auðveld stig og tryggja sér farseðilinn til Afríku. Það gæti hjálpað okkur ef þeir myndu vanmeta okkur aðeins. Ég tel þetta vera tvo erfiðustu leikina í riðlinum að und- anskildum útileiknum á móti Hollandi,“ sagði Ólafur og ítrekaði þá skoðun sína að Holland og Makedónía væru sterkustu liðin í riðlinum. Eyjólfur Sverrisson valdi einnig 21 árs liðið í gær og Ólafur vildi frekar að leikmenn fengju að spila þar í stað þess að sitja upp í pöllum hjá A-landsliðinu. „Það voru nokkrir strákar í þessu 21 árs liði sem ég hefði eflaust tekið inn í þennan hóp en þeir höfðu þá bara setið uppi í pöllum. Ég ákvað því að Eyjólfur tæki þá frekar í sinn leik og þeir myndu þá fá að spila þar,“ sagði Ólafur. Ólafur valdi ekki Jóhannes Karl Guðjóns- son í hópinn sinn en Jóhannes Karl hefur ekki spilað landsleik fyrir Ólaf. „Jóhannes Karl var ekki valinn núna frekar en margir aðrir fót- boltamenn. Það er fagnaðarefni að hann sé kominn upp í efstu deild í Englandi og það eykur flóruna fyrir okkur. Hann á möguleika eins og allir aðrir en ég valdi hann ekki að þessu sinni,“ sagði Ólafur. Ólafur vonast eftir því að íslenskir áhorfendur taki þá hol- lensku sér til fyrirmyndar, fylli völlinn og mæti í bláu. „Ég held að ef það væri einhvern tíma ástæða til að koma á völlinn og sjá alvöru fótboltalið spila, Ísland og Holland, þá er það nákvæmlega núna. Ég trúi, treysti því og veit það að stuðningsmenn koma og fylla völlinn,“ sagði Ólafur og bætti við: „Það var ótrúlega gaman að sjá leikinn úti í Hollandi. Ég held að Hollendingunum sé ekki hleypt inn ef þeir eru ekki í appelsínugulu. Það á líka að vera þannig hérna og þeir sem eru ekki í bláu eiga bara að fara heim til sín. Þetta á að vera skemmtilegt og ákveðin hátíð,“ sagði Ólafur í léttum tón að lokum. ÓLAFUR JÓHANNESSON LANDSLIÐSÞJÁLFARI: ERUM AÐ FARA AÐ MÆTA BESTU LIÐUNUM Í RIÐLINUM Þeir sem mæta ekki í bláu eiga bara að fara heim FÆRÐUBRJÓSTSVIÐAEÐA SÚRT BAKFLÆÐI?... ...Nú færðu Losec Mups* án lyfseðils í næsta apóteki! Nýtt! annt um líf og líðan Notkunarsvið: Losec Mups sýruþolnar töfl ur innihalda efnið omeprazol sem hemur magasýruframleiðslu. Losec Mups er notað við tilfallandi brjóstsviða og súru bakfl æði. Ekki má nota lyfi ð ef þú ert með ofnæmi fyrir omeprazoli eða einhverju öðru innihaldsefnanna eða samhliða lyfjum sem innihalda atazanavir. Gæta skal varúðar ef þú færð einhver af eftirtöldum einkennum: Verulegt þyngdartap, endurtekin uppköst, kyngingarerfi ðleika, blóðuppköst eða blóð í hægðum. Þá skal hafa samband við lækni. Látið lyfjafræðing vita um önnur lyf sem eru notuð eða hafa nýlega verið notuð. Meðganga og brjóstagjöf: Losec Mups má nota á meðgöngu. Konur með barn á brjósti eiga að leita ráða hjá lækni áður en notkun hefst. Skömmtun: Ein Losec Mups 20 mg tafl a ekki oftar en einu sinni á sólarhring. Ef einkennin hafa ekki horfi ð eftir 14 daga stöðuga notkun skal hafa samband við lækni. Gleypa á töfl urnar heilar með ½ glasi af vökva. Hvorki má tyggja þær né mylja. Töfl urnar má leysa upp í vatni eða einhverjum súrum vökva (t.d. ávaxtasafa) og taka þannig inn. Það skiptir ekki máli hvort Losec Mups er tekið inn með eða án matar. Algengustu aukaverkanir eru: Höfuðverkur, niðurgangur, ógleði/ uppköst, kviðverkir, hægðatregða og aukinn vindgangur. Lesið vandlega allan fylgiseðilinn sem fylgir lyfi nu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Mars 2009. *Omeprazol FÓTBOLTI Stóra stundin rennur upp í áfengislausri Róm í kvöld en bann- að er að selja áfengi í sólarhring kringum leikinn. Þá mætast Evr- ópumeistarar Man. Utd og Barce- lona í úrslitum Meistaradeildarinn- ar. Leikurinn er draumaviðureign margra knattspyrnu áhugamanna enda að mætast tvö bestu lið Evr- ópu að margra mati. Þau hafa bæði tryggt sér sigur í sinni deild og hafa spilað frábæran fótbolta í allan vetur. Þetta verður í tíunda sinn sem liðin mætast í Evrópukeppni. Unit- ed hefur unnið þrisvar, Barca tvisv- ar og fjórum sinnum hefur leikjum liðanna lyktað með jafntefli. Liðin mættust síðast í úrslitaleik árið 1991 í Evrópukeppni bikarhafa. Þá hafði Man. Utd betur, 2-1. með mörkum frá Mark Hughes. Fyrir utan þá leikmenn sem eru í leikbanni eiga allir leikmenn lið- anna að vera klárir í slaginn. Rio Ferdinand er byrjaður að æfa með Man. Utd og sömu sögu er að segja af Börsungunum Thierry Henry og Andres Iniesta. Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, getur orðið aðeins annar stjórinn í sögunni til þess að vinna þennan bikar þrisvar. Hinn er Bob Paisley. Ferguson getur einn- ig jafnað met Giovanni Trapattoni sem hefur einn þjálfara hingað til unnið fimm Evrópubikara fyrir utan Ofurbikarinn. Ferguson segir að sigur í kvöld muni setja lið hans á stall með þeim bestu í sögunni en hann hefur ekki alltaf verið nógu ánægður með gengi sinna manna í þessari keppni. „Við höfum á stund- um átt að gera betur í Meistara- deildinni en nú er tækifærið til þess að ná í sigur sem mun setja okkur á stall með bestu liðum Evrópu frá upphafi,“ sagði hinn reyndi Fergu- son en á hinum bekknum verður Pep Guardiola sem er að þreyta frumraun sína sem þjálfari. „Þetta verður þannig leikur að hvorugt lið vill láta frá sér bolt- ann. Við vitum að bæði lið geta leikið vel. Ákveðnir hlutir munu skipta lykilmáli og nægir þar að nefna einbeitingu og heppni. Þetta tvennt getur skorið úr um sigur- vegara,“ sagði Ferguson sem hrós- aði Lionel Messi í hástert en sagð- ist vera með varnarmennina til þess að stöðva hann. Mikið er gert úr meintu einvígi þeirra Ronaldo og Messi í leiknum. „Þetta eru tveir frábærir fót- boltamenn. Hafa báðir hugrekki til þess að ráðast til atlögu gegn varn- armönnum, sama hversu oft þeir eru sparkaðir niður. Þeir hlaupa með boltann og það er þannig hug- rekki sem maður leitar að hjá leik- mönnum.“ henry@frettabladid.is Risarnir mætast í Rómaborg Stærsti knattspyrnuleikur ársins fer fram í kvöld þegar tvö bestu lið Evrópu, Man. Utd og Barcelona, mæt- ast í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Man. Utd á titil að verja og getur orðið fyrsta liðið til þess að verja bikarinn. Tveir bestu knattspyrnumenn heimsins, Cristiano Ronaldo og Lionel Messi, mætast í leiknum. VERÐLAUNIN Lögreglumenn í Róm lyfta upp bikarnum sem barist verður hatramm- lega um í kvöld. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Gamla markamaskín- an Gary Lineker hefur gert það gott sem sjónvarpsmaður síðan hann lagði skóna á hilluna. Lin- eker hefur verið fenginn til þess að spá í spilin í leik kvöldsins og hann segir United vera líklegra. „Ég myndi setja minn pen- ing á United þar sem það er betra varnarlið,“ sagði Lineker sem sjálfur lék með Barcelona á sínum tíma. „United mun örugglega spila þéttar og reyna að sækja hratt og ég held að þar muni United brjóta Barcelona niður,“ sagði Lineker sem bíður spenntur eftir að sjá Ronaldo og Messi. „Messi er ótrúlegur og hefur alla burði til þess að verða besti leikmaður heims frá upphafi. Ég hef ekki séð neinn halda bolta eins og hann síðan Maradona spilaði.“ - hbg Gary Lineker: Vörn United skiptir öllu GARY LINEKER Hér í búningi Barcelona fyrir ansi löngu síðan. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.