Fréttablaðið - 27.05.2009, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 27.05.2009, Blaðsíða 46
26 27. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 BESTI BITINN Í BÆNUM LÁRÉTT 2. báru að, 6. í röð, 8. hlaup, 9. tækifæri, 11. gangþófi, 12. fláræði, 14. rusl, 16. í röð, 17. skordýr, 18. til viðbótar, 20. hreyfing, 21. velta. LÓÐRÉTT 1. líkamshluti, 3. líka, 4. sár, 5. hár, 7. ódæll, 10. síðasti dagur, 13. útdeildi, 15. mæla dýpt, 16. húðpoki, 19. núna. LAUSN LÁRÉTT: 2. komu, 6. áb, 8. gel, 9. lag, 11. il, 12. slægð, 14. drasl, 16. hi, 17. fló, 18. enn, 20. ið, 21. snúa. LÓÐRÉTT: 1. háls, 3. og, 4. meiðsli, 5. ull, 7. baldinn, 10. gær, 13. gaf, 15. lóða, 16. hes, 19. nú. „Auðvitað fylgist maður með, ég býr hérna hinum megin við læk- inn,“ segir Lilja Pálmadóttir. Lilja og aðrir íbúar á Hofsósi horfa nú með tilhlökkun í hjarta sínu á bygg- ingu sem er að rísa, hina margum- töluðu og víðfrægu sundlaug sem þær stöllur Lilja og Steinunn gáfu. Sökkullinn er risinn og fyrstu myndir gefa ágætis hugmynd um hvers slags upplifun það verður að sitja í heitu pottunum og horfa yfir Skagafjörðinn og til Drang- eyjar. Jafnvel geta hugmyndarík- ir sundkappar ímyndað sér að þeir séu að þreyta Drangeyjarsund að hætti Grettis þegar þeir svamla um í 25 metra lauginni. „Það var nú líka alltaf hugmyndin, að gera út á þetta magnaða útsýni og geta horft til Drangeyjar,“ segir Lilja. Mikla athygli vakti þegar Lilja og Steinunn Jónsdóttir athafna- kona gáfu íbúum á Hofsósi sund- laug á kvenréttindadaginn 19. júní árið 2007. Sigríður Steinþórsdóttir arkitekt teiknaði sundlaugina sem rís vestan við Staðarbjarg en inni- falið í gjöfinni er vegleg þjónustu- miðstöð. Ekki dugði annað en fá forseta- hjónin, Ólaf Ragnar og Dorrit, til að taka fyrstu skóflustunguna að lauginni en sú athöfn fór fram í apríl á síðasta ári. Fyrstu steypu- bílarnir keyrðu í hlaðið strax um haustið en það fór víst um ansi marga íbúana í Skagafirðinum þegar bankarnir og efnahagskerfið brunnu yfir, einhverjir töldu nær öruggt að nú væri úti um sund- ið. Aldeilis ekki og Skagfirðingar eru ansi bjartsýnir á framhaldið. „Samkvæmt áætlunum er ráðgert að sundlaugin verði klár um mán- aðamótin október og nóvember,“ segir sveitarstjórinn Guðmundur í samtali við Fréttablaðið. Hann átti þó alveg eins von á að fram- kvæmdirnar gætu teygst fram í desember og að sundlaugin yrði þá jólagjöfin í ár. Í það minnsta í Skagafirði. - fgg LILJA PÁLMADÓTTIR: ENGU LOGIÐ UM ÚTSÝNIÐ Sundlaug Steinunnar og Lilju verður til á Hofsósi FYRSTA SKÓFLUSTUNGAN Ólafur Ragnar, Dorrit, Steinunn Jónsdóttir og Lilja Pálmadóttir taka fyrstu skóflustunguna að sundlauginni að Hofsósi. M YN D /H IN IR S Ö M U S F. EINSTAKT ÚTSÝNI Ekki verður amalegt að sitja í heitu pottunum eða taka nokkur sundtök í sundlauginni á Hofsósi. Góð mynd er nú komin á mannvirkið sem rís vestan við Staðarbjarg. Áætlað er að sundlaugin verði tekin í notkun í lok þessa árs. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 Tveir. 2 Barcelona og Man. United. 3 Auður Jónsdóttir. „Þetta er hvolpur, labrador-hvolpur,“ segir Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, sem er orðin stoltur hundaeigandi. Loðni ferfætlingurinn er hvers manns hugljúfi en Ilmur segist í raun ekki vita af hverju hún hafi ákveðið að festa kaup á þessu dýri. „Það kviknaði bara einhver sterk þörf, það var bara eitthvað sem sagði mér að þetta yrði ég að gera, svo ég ákvað bara að láta slag standa,“ útskýrir leikkonan. Hundakaupin mæltust þó ekki vel fyrir hjá öllum því fjölmargir komu að máli við hana og ráðlögðu henni að kaupa sér ekki hund. „En þetta var allt saman fólk sem átti ekki hund, það hélt því fram fullum fetum að þessu fylgdi svo gríðarleg vinna og ég hefði bara engan tíma fyrir hundinn.“ Hins vegar snerist dæmið algjörlega við þegar Ilmur ræddi við hundaeigendur. „Þeir sögðu að þetta væri alveg yndislegt og ég ætti bara að láta slag standa.“ Auk þess er Ilmur á leið í sumarfrí og hyggst hún nýta það að einhverjum hluta til að ala hvolpinn upp. „Þetta er bara eins og barn, nema það kvartar ekki.“ Leikkonan er enn ekki búin að nefna málleys- ingjann en hefur verið að máta nafnið Garp við hann. „Reyndar reisir hann sig upp þegar ég kalla „Snati“ en við sjáum til hvernig þetta fer.“ - fgg Ilmur farin í hundana KEYPTI SÉR HUND Ilmur Kristjánsdóttir er orðin stoltur hunda- eigandi, hún hefur eignast labrador-hvolp sem svarar nafninu „Snati“ en verður hugsanlega nefndur Garpur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Auglýsingasími Á næstu grösum og Grænn kost- ur eru kostastaðir. Maður verður sprengsaddur en samt sem áður léttur á fæti og glaðvakandi. Haraldur Ólafsson veðurfræðingur. Aðstandendur stórtónleika Jóhönnu Guðrúnar sendu í gær frá sér tilkynningu þar sem fyrirhug- uðum tónleikum Eurovision- stjörnunnar í Laugardalshöll var frestað fram á haust. Tón- leikarnir áttu að vera 4. júní en vegna áhuga sænskra aðila urðu söngkonan og umboðsmaður henn- ar, María Björk, að bregðast skjótt við og var tekin sú ákvörðun að fresta öllu tónleikahaldi. Þor- steinn Stephensen hjá Hr. Örlygi, sem sér um tónleikana, skilur vel ákvörðun Jóhönnu. „Þær fóru eiginlega út með engum fyrirvara, auðvitað vilja þær hamra járnið á meðan það er heitt, laginu gengur vel og maður verður bara að skilja það,“ segir Þor- steinn og viðurkennir að það hafi verið djörf ákvörðun á sínum tíma að fá Jóhönnu í verkefni af þessari stærðargráðu með svo skömmum fyrirvara. „Við vissum auðvitað að hún yrði mjög upptekin í sumar.“ En þessi ákvörðun setur smá strik í reikninginn því kvöldið eftir hafði Hr. Örlygur boðað til mikill- ar rokkveislu þar sem margir af fremstu rokk- söngvurum landsins troða upp og þenja raddböndin við helstu rokkslagara tónlistarsögunn- ar. Þorsteinn við- urkennir að þeir hafi þarna ætlað að slá tvær flug- ur í einu höggi og komast hjá óþarfa kostn- aði við upp- setningu á hljóðkerfi og öðru slíku. „Þetta er auðvitað erfitt en við erum búnir að ná góðu samkomu- lagi við Laugardalshöllina og helstu kostnaðaraðilana, það er kreppa alls staðar, við verð- um bara öll að hjálpast að og láta þetta ganga upp,“ útskýrir Þorsteinn og segir engan bilbug á sér eða öðrum að finna. „Nei, nei, þetta leggst bara vel í okkur.“ - fgg/fb Brotthvarf Jóhönnu setur strik í reikninginn FARIN Jóhanna Guðrún flaug til Svíþjóðar í gær ásamt umboðsmanni sínum. EKKERT HIK Þorsteinn Stephensen hjá Hr. Örlygi segir engan bilbug á þeim að finna þótt Jóhanna Guðrún hafi flog- ið til Svíþjóðar og frestað sínum tónleikum. Björn Bjarnason er maður tækninýjunga. Hann var einn þeirra fyrstu sem kom sér upp bloggsíðu og hefur notað tölvupóst í samskiptum sínum við fjölmiðla í gegnum tíðina. Hann er hins vegar eilítið aftarlega á merinni þegar kemur að Facebook-samfélaginu vinsæla en hefur nú ákveðið að taka það í sína þjónustu. Facebook- síða Björns er hins vegar svo ný af nálinni að honum hefur ekki tekist að sanka að sér mörgum vinum. Jónína Ben heilsuræktardrottning er þó ein þeirra. Loga Geirssyni og Björgvini Páli Gústafssyni hefur borist óvæntur liðsauki við að kynna silfurgelið sitt. Því Einar Bárðarson, umboðs- maður Íslands, er genginn til liðs við þá og hyggst aðstoða hand- boltahetjurnar eftir fremsta megni. Einar er sjálfur mikill gel-maður og fer sjaldnast úr húsi án þess að hárið sé í sínu besta formi enda er skjólstæðingur hans, Jógvan, hárgreiðslumaður af guðs náð. Og nú heyrast þær raddir frá Listahátíðinni í Reykjavík að þjóðsöngur Íslands komi jafnvel eitthvað við sögu á tónleikum Bob Mintzer og Stórsveitar Reykjavíkur þar sem Sigurður Flosason er fremstur í flokki. Tónleikarnir verða í Fríkirkjunni 30. maí. Mintzer ku vera áhugamaður um þjóðsönginn og óskaði eftir því við forsætisráðuneytið að fá að útsetja hann með sínu nefi. Ekki var fallist á þá bón enda varðar vanvirðing við þjóðsönginn allt að tveggja ára fangelsi. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.