Fréttablaðið - 27.05.2009, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 27.05.2009, Blaðsíða 20
 27. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR2 BÍLADEILD er starfandi innan Ferðafélags Íslands og stendur fyrir jeppaferðum. Þar er ekið á eigin bílum og lögð áhersla á góða ökuferð með skemmtilegum göngum í bland. „Þetta er gagnvirk upplýsinga- handbók sem er sérhönnuð fyrir farsíma og lófatölvur,“ segir Ernir Erlingsson, tölvuverkfræð- ingur hjá sprotafyrirtækinu Ymir Mobile, sem hóf samstarf við Reykjavíkurborg sumarið 2008 um útgáfu á farsímahugbúnaði fyrir menningarnótt og síðar vetrarhá- tíð sem var í febrúar. Beðinn um að lýsa þjónustuhug- búnaðinum segir hann: „Þetta er byltingarkennd og ný aðferð sem snýst um að koma upplýsingum til ferða- og heimamanna um borg- ina Reykjavík. „Það hefur enginn gert ferðahandbók fyrir farsíma og lófatölvur með þessum hætti á Íslandi áður, svo ég viti til,“ nefn- ir Ernir. „Afurðin sem við erum að kynna núna er Mobileguide sem við hugsum fyrst og fremst fyrir ferðamenn,“ segir hann og bætir við að vissulega sé götukortið og strætóleiðakerfið nytsamlegt fyrir Íslendinga jafnt sem ferðamenn. Reykjanesbær er nýlega orðinn samstarfsaðili og verður fljótlega hægt að fá upplýsingar um bæinn í farsímann eða lófatölvuna. „Við erum einnig í viðræðum við fleiri sveitarfélög sem hafa áhuga á að taka búnaðinn í notkun.“ Hugbúnaðurinn er aðeins fáan- legur á ensku sem stendur. Vonir standa til að bæta við fleiri tungu- málum strax í sumar að sögn Ernis. „Ferðahandbókin eða Mobile guide býður upp á margvíslega mögu- leika, svo sem eins og að láta bún- aðinn leiða sig um götur borgar- innar og láta vísa sér á markverða staði í borginni og auðvitað fletta upp í leiðakerfi Strætós.“ Spurður um kostnaðinn við notkunina segir Ernir: „Hugbún- aðurinn er ókeypis en einhver hverfandi gagnagjöld geta verið ef búnaðurinn er sóttur í gegnum nettengingu í farsíma eða lófa- tölvu. Búnaðinn er hægt að nota fyrir farsíma frá öllum farsíma- framleiðendum nema Apple.“ Viðtökurnar hafa verið góðar og hafa margir þegar nýtt sér það að sækja sér þennan þjón- ustuhugbúnað og eru byrjaðir að nota hann. Hægt er að hlaða hugbúnaðin- um í símann með því að slá inn vefslóðina wwww.mobileguide. is/download í farsímavafra. Á heimasíðunni er að finna upplýs- ingar um hvernig hugbúnaður er sóttur með ágætis leiðarvísi með myndum. vala@frettabladid.is Ferðahandbók sem má hlaða beint í farsíma Ymir Mobile ehf. hefur unnið að gerð gjaldfrjáls þjónustuhugbúnaðar fyrir farsíma og lófatölvur. Á vef- síðunni www.mobileguide.is er hægt að verða sér úti um hugbúnaðinn. Ernir Erlingsson til hægri ásamt Sveini Viðarssyni hjá Ymir Mobile ehf. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir Fréttablaðið er sem fyrr mest lesna dagblað landsins með glæsilegt forskot á samkeppnisaðila sinn eins og síðasta könnun Capacent Gallup ótvírætt sýnir. Við erum auðvitað rífandi stolt af þessum góða árangri og bendum auglýsendum á að notfæra sér forskot okkar þegar þeir velja auglýsingamiðil. Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009. Fréttablaðið stendur upp úr Allt sem þú þarft... 34% 74%

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.