Fréttablaðið - 27.05.2009, Síða 8
8 27. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR
1 Hvað leggja erlendir sér-
fræðingar til að háskólar verði
margir í landinu?
2 Hvaða lið eigast við í úrslita-
leik Meistaradeildar Evrópu í
kvöld?
3 Hver var leiðbeinandi í
skapandi skrifum sem skilar
sér í leikverki eftir einstæðar
mæður?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 26
SJÁVARÚTVEGUR Jóhanna ÁR 206
hélt út á sjó í gær og markar það
upphaf hrefnuveiðitímabilsins.
„Ég er að von-
ast til að þeir
landi í kvöld og
þá verður þetta
komið í Krón-
una á föstu-
dag og tilbúið
á grillið um
hvítasunnuna,“
segir Gunnar
Bergmann Jóns-
son, formaður
Félags hrefnuveiðimanna.
Á sama tíma mótmæltu fimm
umhverfissamtök fyrir framan
sendiráð Íslands í London. Græn-
friðungar sendu frá sér yfirlýs-
ingu þar sem stjórnvöld eru gagn-
rýnd fyrir að bjarga ekki orðspori
landsins með því að koma í veg
fyrir hvalveiðar. - jse / ss
Félag hrefnuveiðimanna:
Hvalkjötið til
fyrir helgi
GUNNAR
BERGMANN
SAMFÉLAGSMÁL Leikskólaráð
Reykjavíkurborgar mun í dag taka
fyrir tillögu borgarstjórnarmeiri-
hlutans um að hækka verulega
gjöld fyrir leikskóladvöl umfram
átta klukkustundir á dag. Stefnt er
að því að gjaldskráin breytist frá
1. ágúst næstkomandi.
„Við skoðuðum margar leiðir,
og fannst þetta vera sanngjarnast
og minnst íþyngjandi fyrir for-
eldra,“ segir Þorbjörg Helga Vig-
fúsdóttir, formaður leikskólaráðs
Reykjavíkurborgar. Borgin verði
að gera kröfu um hagræðingu á
flestum sviðum vegna efnahags-
ástandsins, og þar séu leikskólar
og grunnskólar ekki undanþegnir,
þó þeir séu hvað mest varðir.
„Byrðarnar eru alveg nægar á
barnafjölskyldum í dag, þetta er
fólkið sem hefur verið að koma
þaki yfir höfuðið, taka húsnæð-
islán og kaupa bíla á bílalánum,“
segir Oddný Sturludóttir, fulltrúi
Samfylkingarinnar í leikskólaráði
Reykjavíkurborgar.
Hún segir fulltrúa flokksins ótt-
ast að þetta bitni á þeim sem síst
skyldi, einstæðum foreldrum og
öðrum sem þurfi að vinna langan
vinnudag til að ná endum saman.
Því muni fulltrúar flokksins greiða
atkvæði gegn tillögu meirihlutans
á fundi leikskólaráðs í dag.
Leikskólagjöld munu ekki hækka
hjá þeim sem kaupa átta tíma vist-
un á dag eða minna fyrir börn sín,
þar sem það er skilgreint sem
grunnþjónusta sveitarfélagsins,
segir Þorbjörg Helga. Hún bendir
á að margir foreldrar borgi fyrir
mun lengri dvalartíma en börnin
nýti í raun.
Oddný segir þetta hæpinn rök-
stuðning fyrir hækkun á álög-
um á barnafjölskyldur í borg-
inni. Venjulegur vinnudagur sé
átta klukkustundir, og sé reiknað
með fimmtán mínútum til og frá
leikskóla þurfi foreldrar að borga
fyrir átta og hálfa klukkustund á
leikskólanum. Þetta eigi sérstak-
lega við um fólk sem búi í úthverf-
um á borð við Grafarvog og Graf-
arholt, en vinni annars staðar í
borginni.
Í dag borga foreldrar á bilinu
fimm til þrettán prósent kostnaðar
við leikskólavist barna sinna. Nái
breytingin fram að ganga munu
foreldrar greiða helming kostn-
aðarins fyrir fyrstu hálfu klukku-
stundina umfram átta stundir,
og allan kostnað við leikskólavist
umfram átta og hálfa klukku-
stund.
Um 2.300 börn eru lengur en
átta stundir á dag á leikskólum
borgarinnar. Gróft áætlað eru um
þriðjungur þeirra börn einstæðra
foreldra, námsmanna eða öryrkja.
Tæplega 200 börn eru í níu og hálfa
stund á dag á leikskólanum.
Oddný bendir á að dvalartími
barna á leikskólum borgarinnar
hafi lengst eftir að kreppan skall á,
þvert á það sem spár hafi gert ráð
fyrir. Nú séu 39,5 prósent barna
lengur en átta stundir á dag á leik-
skólanum, en hlutfallið hafi verið
um 37 prósent í september 2008.
brjann@frettabladid.is
Leikskólagjöld munu hækka
Greiðslur fyrir leikskólavist umfram átta klukkustundir á dag munu hækka um allt að 63 prósent frá 1.
ágúst næstkomandi. Dvalartími barna á leikskólum borgarinnar hefur lengst í kreppunni, þvert á spár.
HÆKKAR MEST UM RÚMLEGA 63 PRÓSENT
Fyrir* Eftir* Hækkun
Hjón eða sambúðarfólk sem kaupir 9,5 klukkustundir á dag 23.361 38.155 63,3 prósent
Hjón eða sambúðarfólk sem kaupir 9 klukkustundir á dag 22.459 31.155 38,7 prósent
Hjón eða sambúðarfólk sem kaupir 8,5 klukkustundir á dag 21.557 24.155 12,1 prósent
Einstæðir eða námsmenn sem kaupa 9,5 klukkustundir á dag 13.329 19.463 46,0 prósent
Einstæðir eða námsmenn sem kaupa 9 klukkustundir á dag 12.955 16.560 27,8 prósent
Einstæðir eða námsmenn sem kaupa 8,5 klukkustundir á dag 12.581 13.658 8,6 prósent
*Samanlögð gjöld fyrir eitt barn á leikskóla, að máltíðum meðtöldum.
Veittur er 100 prósent systkinaafsláttur af námsgjöldum en afslátturinn nær ekki til gjalda fyrir máltíðir.
LEIKSKÓLAR Um 2.300 börn eru lengur en átta stundir á dag á leikskólum borgar-
innar. Um þriðjungur þeirra eru börn einstæðra foreldra, námsmanna eða öryrkja.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VEISTU SVARIÐ?