Fréttablaðið - 27.05.2009, Blaðsíða 34
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
9,7Kauphöllin áminnti Bakkavör
og Straum opinberlega í síðustu
viku ásamt því að sekta hvort
félag um 1,5 milljónir króna.
Kauphöllin hefur ekki oft beitt
félög févíti. Í janúar 2003 var
Búnaðarbankinn sektaður um 4,5
milljónir króna fyrir að virða
ekki flöggunarreglur í tengslum
við gerð samnings um meðferð
hlutabréfa í Straumi um hálfu
ári fyrr. Það er hæsta byrðin
sem skráð félag hefur á sig
fengið vegna brota á reglum.
Næsthæsta sektin upp á fjór-
ar milljónir króna féll á herðar
Existu í desember í fyrra. „Við
höfum takmarkaðar heimildir til
að leggja á fésektir vegna brota á
reglum. Þær eru ekki málið held-
ur hafa þær forvarnargildi,“ segir
Páll Harðarson,
aðstoðarfor-
stjóri Nasdaq
OMX Ice-
land.
Fátíðar skammir
prósenta lækkun hefur orðið á kaupmætti
launa frá því hann náði hámarki í byrjun síðasta
árs. Kaupmáttur nú er svipaður og var í árslok
2003 samkvæmt mælingu Hagstofunnar. 367
milljóna króna hagnaður var eftir skatta á rekstri
Atlantic Petroleum á fyrsta fjórðungi ársins. Hafin
er olíuvinnsla á tveim svæðum sem skilar tekjum.
Á sama tíma í fyrra var tap á rekstrinum. 30
mál fara frá ríkisskattstjóra til skattrann-
sóknarstjóra vegna notkunar Íslendinga
á erlendum greiðslukortum hér á landi.
Grunur er um undanskot á sköttum.
Þótt peningar færi manni ekki
endilega hamingjuna má fyrir
þá fá helling af fasteignum.
Netútgáfa Jyllands-Posten
greinir frá því hvernig millj-
arðamæringurinn Stefan
Persson, sænskur eigandi fata-
verslanakeðjunnar Hennes &
Mauritz (H&M) fór aðrar leiðir
en sauðsvartur almúginn þegar
hann var í fasteignahugleið-
ingum. Í stað þess að láta sér
nægja hús á góðum stað svip-
aðist hann um eftir bæ til sölu
og er við að festa kaup á einum
slíkum, Linkenholt í Hampshire
í Bretlandi. Verðmiðinn er 25
milljónir punda, eða nálægt 5
milljörðum króna. Í pakkanum
er höfuðbýli, 21 kot til útleigu,
2.000 ekrur landsvæðis (þar af
1.500 ræktarland, restin skóg-
ur) og veiðiréttur. Guardian í
Bretlandi segir auðmenn hafa
bitist um eignina síðan í mars,
en Persson hafi boðið best.
Nokkuð ljóst að ekki láta allir
truflast af heimskreppunni.
Sænskur milli
kaupir enskan bæ
Í uppsveiflu undangenginna ára
var frá því greint að margir
þeirra sem komist hefðu í álnir
hefðu tekið upp það tómstunda-
gaman að safna fínu og dýru
víni. Um áhugamál sumra var
fjallað á síðum blaða og myndir
teknar í vínkjöllurum. Einstaka
heyrðist fussa yfir þessu og
kalla flottræfilshátt.
Nú eru aðstæður allar aðrar
og óvíst að söfnun fari fram
með sama krafti og áður. Þá
má líka vera lán í óláni að vín
heldur gildi sínu og gæti
jafnvel reynst prýðisfjár-
festing verði því komið
í verð. Að öðrum kosti
er hægur heimaleikur að
skála fyrir fornri frægð og
drekkja sorgum sínum verði
efnahagsaðstæður til þess að
menn verði að láta af þessu
tómstundagamni sínu.
Flottræfilsháttur
eða fyrirhyggja?