Fréttablaðið - 27.05.2009, Page 38
18 27. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR
folk@frettabladid.is
Miðasala á afmælistónleika
Eiríks Haukssonar hefst á
fimmtudaginn á vefsíðunni midi.
is klukkan 11. Eins og Frétta-
blaðið greindi frá fyrir margt
löngu verður Eiríkur fimmtug-
ur í ár en engin ellimerki eru þó
á rauðhærða rokkaranum. Hann
blæs til veglegrar afmælisveislu
eins og honum einum er lagið
og hyggst sýna og sanna, í eitt
skipti fyrir öll, að allt er fimm-
tugum fært. Tónleikarnir verða
á afmælisdaginn sjálfan sem
er 4. júlí og hefur þeim verið
gefið nafn við hæfi: „Born on the
fourth of July“.
Eiríkur mun að sjálfsögðu taka
alla sína helstu slagara en sér-
stök afmælissveit hefur verið
sett saman til að leika undir. Að
sjálfsögðu munu íslenskir tón-
listarmenn heiðra Eirík með
nærveru sinni en jafnframt hafa
nokkrir erlendir samstarfsmenn
Eurovision-stjörnunnar boðað
komu sína, þeirra á meðal Ken
Hensley, fyrrverandi liðsmaður
Uriah Heep.
Eiríkur í
Austurbæ
TREÐUR UPP Í AUSTURBÆ Eiríkur Hauks-
son heldur upp á afmælið sitt með
tónleikum í Austurbæ. Miðasala hefst á
fimmtudaginn.
> HUNDURINN KEMUR MEÐ
Jennifer Aniston er svo háð hundi
sínum til þrettán ára að hún tekur
hann alltaf með sér til vinnu. Fer-
fætlingurinn heitir Norman og
fylgir eiganda sínum á tökustað á
hverjum morgni.
Ástralska
söngstjarn-
an Kylie Min-
ogue er farin að
búa sig undir
væntanlegt
brúðkaup því
spænski kær-
astinn hennar,
Andreas Vel-
encoso, hefur
beðið hana um
að giftast sér.
Andreas bar
upp bónorðið
yfir rómantísk-
um kvöldverði
í New York og samkvæmt heim-
ildum Grazia-tímaritsins svífa
ástríðurnar yfir vötnum hjá turt-
ildúfunum. „Andreas sagðist vilja
vakna við hlið hennar á hverjum
einasta morgni í sínu lífi og hann
þráði að eiga hana fyrir eigin-
konu,“ hefur Grazia eftir heim-
ildarmanni sínum. Kylie ku víst
hafa spurt sinn heittelskaða hvort
honum væri alvara með þessu og
þegar það svar reyndist jákvætt
játaðist Kylie honum á staðnum.
Kylie gengur
í það heilaga
TRÚLOFUÐ Kylie
Minogue er í
brúðkaupshug-
leiðingum eftir að
hafa játast unnusta
sínum.
Verðmetum þér að
kostnaðarlausu!
Við erum stærsta uppboðsfyrirtæki með frí-
merki og mynt á Norðurlöndum og verðum
á Íslandi dagana 28. – 31. maí n.k.
Við leitum að efni fyrir komandi uppboð
okkar sem ná athygli safnara um allan
heim. Óskað er eftir heilum söfnum,
stökum verðmætum frímerkjum, gömlum
umslögum og póstkortum og mynt, minnispeningum,
medalíum og gömlum peningaseðlum.
”Hvaðeina getur verið áhugavert!”
Verðum til viðtals á Hótel Loftleiðum
fimmtudaginn 28. maí kl. 17:00 – 20:00 og
á frímerkjasýningunni NORDIA 09 í
Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði
föstudag til sunnudags 29. – 31. maí.
Frítt verðmat án skuldbindinga !
Bjóðum uppá skoðun í heimahúsum ef
um stærri söfn er að ræða. Nánari upplýsingar
veitir Össur Kristinsson í símum 5554991 og 6984991.
Við bjóðum líka
staðgreiðsluviðskipti og
greiðum þá í $ eða €
THOMAS HØILAND AUKTIONER A/S
Lygten 37 • DK-2400 København NV • +45 3386 2424 • info@tha.dk
Tvær tónlistarhátíðir verða
haldnar á Akureyri og í
Rangárvallasýslu um hvíta-
sunnuhelgina, þessa fyrstu
stóru ferðahelgi ársins.
Önnur heitir AIM-festival
en hin Norden Blues Festi-
val.
Allt að eitt hundrað tónlistarmenn
koma fram á Norden Blues Festi-
val, þar á meðal Grana Louise frá
Chicago ásamt Blue Ice Band,
Andrea Gylfadóttir, Kristjana Stef-
ánsdóttir og Ragnheiður Gröndal.
Á meðal hljómsveita sem stíga á
svið eru South River Band, Slow
Train og Mood. Haldnir verða lið-
lega fimmtíu tónleikar sem munu
dreifast um Rangárvallasýslu frá
föstudegi til sunnudags.
„Ég hef búið í þessu sveitarfélagi
í 25 ár og er búinn að ganga með
þessa grillu í höfðinu sennilega í
tólf til fimmtán ár að koma þessu
á koppinn,“ segir Sigurgeir Guð-
mundsson í Heklu Blúsfélagi sem
skipuleggur hátíðina. „Þetta er
virkilega spennandi verkefni og
það er hvetjandi og krefjandi líka
að takast á við þetta.“ Hann segir
að koma Grana Louise á hátíðina sé
mikill fengur. „Hún á að syngja tíu
dögum eftir þessa hátíð á Chicago
Blues Festival sem sýnir að hún er
mikils metin í þessum heimi.“
Útgangspunktar Norden Blues
Festival verða byggðakjarnarn-
ir Hella og Hvolsvöllur ásamt
ferðaþjónustuaðilum í Fljótshlíð.
Einnig verða tónlistaruppákom-
ur í Þykkva bæ. Skipulagðar verða
rútuferðir á milli tónleikastaða og
helstu gististaða meðan á hátíð-
inni stendur. Við skipulagningu og
uppbyggingu hátíðarinnar er m.a.
tekið mið af reynslu Norðmanna
og Blúshátíðar í Reykjavík, sem
styður dyggilega við verkefnið.
Hugmyndin er að gera hátíðina að
árvissum viðburði í Rangárvalla-
sýslu.
Alþjóðlega tónlistarhátíðin AIM
Festival á Akureyri, sem stendur
yfir frá 29. maí til 4. júní, er nú
haldin í fjórða sinn. Alls komu um
fimm þúsund gestir á hátíðina í
fyrra og er ekki búist við færra
fólki í ár. Framkvæmdastýran
Guðrún Þórs segir að undirbúning-
urinn hafi gengið mjög vel. „Það
er öðruvísi áhugi en hefur verið í
gegnum árin. Ég upplifi meiri þörf
hjá fólki fyrir að hafa gaman og
gera eitthvað saman,“ segir hún.
„Ég á von á fjölda hérna, bæði
Reykvíkingum og fólki utan af
landi.“
Á meðal þeirra sem stíga á svið
eru: Hjálmar, Retro Stefsson,
Stórsveit Akureyrar undir stjórn
Spánverjans Alberto Carmona
og Stórsveit Reykjavíkur ásamt
saxófónleikaranum Bob Mintzer,
Reykjavík!, Sudden Weather
Change, Nýdönsk og Mótettukór
Hallgrímskirkju.
Nánari upplýsingar um báðar
hátíðirnar má finna á Midi.is.
freyr@frettabladid.is
Tvær tónlistahátíðir um ferðahelgi
RAGNHEIÐUR GRÖNDAL Ragnheiður kemur fram á tónlistarhátíðinni Norden Blues
Festival sem er haldin í fyrsta sinn í Rangárvallasýslu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Það verður sannkallað glæpsam-
legt ástand á Grand Rokki í dag kl. 17
þar sem úrslit í Gaddakylfunni 2009,
glæpasagnasamkeppni Mannlífs og
Hins íslenska glæpafélags, verða
kunngerð. Hinn háskalegi verð-
launagripur er nú veittur í sjötta
sinn og bárust yfir sjötíu sögur í
keppnina að þessu sinni.
Kristján Jóhann Jónsson,
fulltrúi Glæpafélagsins, var
formaður dómnefndarinnar
og valdi, ásamt þeim Þórarni
Þórarinssyni, aðstoðarrit-
stjóra Mannlífs, og Kristj-
áni H. Guðmundssyni blaða-
manni, þær þrettán sögur sem
þóttu bera af. Sögurnar birtast í
árlegri kilju sem fylgir tímaritinu
Mannlífi, sem kemur út daginn eftir
glæpateitið. Kiljan í ár ber heitið 13
krimmar.
Höfundar þriggja bestu sagnanna
verða verðlaunaðir sérstaklega og mun
Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn
afhenda sigurvegaranum Gaddakylf-
una, glæsilegan verðlaunagrip úr
smiðju listakonunnar Koggu.
Verðlaunaafhending Gaddakylf-
unnar 2009 markar upphaf ráðstefnu
Alþjóðlegu glæpasagnasamtakanna
(AIEP) og Norrænu glæpasagnasam-
takanna (SKS) þar sem hápunkturinn
verður afhending Glerlykilsins, nor-
rænu glæpasagnaverðlaunanna. Það
eru glæpadagar fram undan og komast
vonandi allir heilir frá því þinghaldi.
Væri raunar efni í glæpasögu ef ein-
hvern vantar hugmynd.
- pbb
Gaddakylfan yfirvofandi
BÓKMENNTIR Gaddakylfan - hin opinberu
verðlaun Íslands í sínum geira. Geir Jón afhenti í
fyrra og mætir aftur í ár.