Fréttablaðið - 27.05.2009, Síða 43
MIÐVIKUDAGUR 27. maí 2009 23
FÓTBOLTI Pétri Georg Markan hefur
ekki gengið sem skyldi að festa sig
í sessi hjá Val eftir að hann kom til
félagsins frá Fjölni.
Hann spilaði samtals í 44 mínút-
ur í fyrstu þrem umferðum móts-
ins og var svo ekki í leikmannahópi
Vals gegn Grindavík á mánudag.
Það fór ekki vel í leikmanninn eins
og gefur að skilja, hann rauk heim
og horfði á leikinn heima hjá sér.
„Eðlilega var ég ekki sáttur við
að vera ekki í hópnum. Ég viður-
kenni að ég tók þá ákvörðun að
fara heim og horfa á leikinn í sjón-
varpinu. Varð að kæla mig aðeins
enda miklar tilfinningar í þessu.
Það er bara eðlilegt enda er ég til-
finningamaður sem spilar af til-
finningu og ástríðu. Mér sýnist að
það sé eftirspurn eftir slíku í þessu
liði,“ segir Pétur Georg Markan.
„Ég er að bíða eftir tækifæri og
mér finnst ég eiga það skilið. Ég
hef aldrei verið eins hungraður í
að skora og spila og núna.
Það er aftur á móti þjálfarinn
sem ber ábyrgðina, velur liðið og
hann hefur ekki trú á mér. Ég verð
að sýna biðlund en mér finnst það
hundfúlt og þetta er erfitt. Því er
ekki að neita.“
Þrátt fyrir mótlætið ætlar Pétur
Georg ekki að gefast upp og hefur
ekki íhugað að óska þess að vera
lánaður til annars félags en sögu-
sagnir um að hann væri á leið til
Fjölnis voru í gangi.
„Þegar ég samdi var það kort-
lagt að ég hefði hlutverk í liðinu
en ég veit ekki hvað hefur komið
fyrir í millitíðinni. Ég er þannig að
ef ég tek að mér verkefni þá vil ég
klára það. Ég mun því ekki gefast
upp en berjast fyrir sæti mínu. Það
er nóg eftir af mótinu og hver veit
hvernig þetta spilast. Ég mun svo
meta það í lok sumars hvort það
hafi verið rétt ákvörðun að fara í
Val eður ei. Ég hef samt trú á því
að það sé pláss fyrir mig í liðinu,
mann sem spilar með hjartanu,“
sagði Pétur ákveðinn.
- hbg
Pétur Georg Markan ekki í náðinni hjá Willum Þór en neitar að gefast upp:
Þjálfarinn hefur ekki trú á mér
PÉTUR GEORG Er ekki að fara að endur-
nýja kynnin við Gunnar Má og Fjölni.
FÓTBOLTI Eyjólfur Sverrisson
valdi í gær sinn fyrsta lands-
liðshóp síðan hann tók aftur við
íslenska 21 árs landsliðinu.
Fram undan er æfingaleikur
á móti Dönum í Álaborg 5. júní
næstkomandi. Eyjólfur valdi
fjóra nýliða í liðið, þar á meðal
markahæsta leikmann Pepsi-
deildarinnar, Alfreð Finnbogason
úr Breiðabliki.
Hinir eru Óskar Pétursson,
markvörður úr Grindavík, Björn
Daníel Sverrisson, miðjumaður
úr FH og Guðlaugur Victor Páls-
son, miðjumaður úr Liverpool.
„Það er mikið af ungum og efni-
legum strákum að spila í efstu
deild í dag og víðar. Við getum
í rauninni stillt upp tveimur til
þremur frábærum liðum,“ sagði
Eyjólfur en aðstoðarmaður hans
er Tómas Ingi Tómasson. - óój
LANDSLIÐSHÓPURINN:
Markmenn
Þórður Ingason, Fjölni 4 leikir
Óskar Pétursson, Grindavík nýliði
Varnarmenn
Hólmar Örn Eyjólfsson, West Ham 7
Hjörtur Logi Valgarðsson, FH 2
Skúli Jón Friðgeirsson, KR 2
Andrés Már Jóhannesson, Fylki 1
Finnur Orri Margeirsson, Breiðab. 1
Guðmundur R. Gunnarsson, GAIS 1
Miðjumenn
Birkir Bjarnason, Viking 13
Bjarni Þór Viðarsson, Twente 12
Gylfi Þór Sigurðsson, Reading 6
Jóhann Berg Guðmundsson, AZ 2
Guðmundur Kristjánsson, Breiðab. 1
Björn Daníel Sverrisson, FH nýliði
Guðlaugur Victor Pálss., Liverpool nýl.
Sóknarmenn
Rúrik Gíslason, Viborg 11
Björn Bergmann Sig., Lilleström 1
Alfreð Finnbogason, Breiðabliki nýliði
Fyrsti landsliðshópur Eyjólfs:
Valdi 4 nýliða
NÝLIÐI Alfreð Finnbogason, markahæsti
maður Pepsi-deildarinnar, hefur aldrei
spilað landsleik. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stefánsson
og félagar í Benetton Basket spila
í kvöld úrslitaleik við La Fortezza
Bologna um sæti í undanúrslitum
ítölsku úrvalsdeildarinnar. Bæði
lið hafa unnið heimaleiki sína í
einvíginu og fimmti leikurinn fer
fram á heimavelli Jóns og félaga í
Palaverde-höllinni í Treviso.
Jón Arnór hefur spilað mjög
vel í síðustu þremur leikjum Ben-
etton eftir að hafa byrjað rólega.
Það kveikti greinilega í okkar
manni þegar hann var settur á
bekkinn eftir aðeins fimm mín-
útur í fyrsta leiknum á móti
Bologna.
Jón Arnór hefur síðan skorað
11,7 stig og gefið 2,7 stoðsending-
ar að meðaltali á 26,3 mínútum
en hann hafði aðeins skorað sam-
tals 4 stig á 36 mínútum í fyrstu
þremur leikjum sínum. Jón Arnór
hefur meðal annars sett niður 6
af 11 þriggja stiga skotum sínum
í undanförnum þrem leikjum. - óój
Ítalski körfuboltinn í kvöld:
Jón Arnór er
kominn í gang
ODDALEIKUR Í KVÖLD Jón Arnór Stef-
ánsson í oddaleik með KR á dögunum
móti Grindavík. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
auglýsir inntöku nýnema fyrir skólaárið 2009 - 2010
Skóli með sterkan prófíl
Grafísk hönnun
LISTHÖNNUNARDEILD veitir starfsmenntun í grafískri hönnun. Á námstímanum öðlast nemendur yfirgripsmikla þekkingu og þjálfun í
faginu sem gerir þá hæfa til að fást við krefjandi verkefni á sviði hönnunar fyrir prentmiðla og margmiðlun. Rík áhersla er lögð á
tæknilega og listræna ögun. Strax í upphafi takast nemendur á við grunnhugmyndir fagsins, rætur þess í fagurlistum og tengsl við
prentiðnaðinn. Til að hefja nám í deildinni þurfa umsækjendur að hafa lokið viðurkenndu fornámi í framhaldsskóla eða myndlistar-
skóla og þar sannað hæfni sína í undirstöðugreinum.
Frjáls myndlist
FAGURLISTADEILD veitir starfsmenntun í frjálsri myndlist. Nemendur fá alhliða þjálfun í hefðbundnum greinum þar sem áhersla er
lögð á tæknilega og listræna ögun. Meðal kennslugreina eru: efnisfræði, skissugerð, olíumálun, akrýlmálun, myndgreining,
ljósmyndun, grafík, módelteiknun, rými, bóklist, tölvugrafík, hugmyndafræði, sýningarstjórnun, fagurfræði og listfræði. Til að hefja
nám í deildinni þurfa umsækjendur að hafa lokið viðurkenndu fornámi í framhaldsskóla eða myndlistarskóla og þar sannað hæfni
sína í undirstöðugreinum.
Myndlist, hönnun og arkitektúr
FORNÁM - Alhliða undirbúningur fyrir nám í hönnun og listum á æðra skólastigi. Myndlistaskólinn á Akureyri býður upp á hnitmiðað
40 eininga heildstætt nám í sjónlistum. Námið er skipulagt með hliðsjón af aðalnámskrá framhaldsskóla og í því felst listrænn og
tæknilegur undirbúningur fyrir framhaldsnám á sviði myndlistar, hönnunar og arkitektúrs.
Umsókn um skólavist þarf að berast skólanum fyrir 3. júní nk. ásamt umbeðnum gögnum og tilskyldum fjölda eigin myndverka.
Inntökunefnd áskilur sér rétt til að boða umsækjendur til viðtals dagana 3. til 7. júní, telji hún ástæðu til.
Myndlistaskólinn á Akureyri - Kaupvangsstræti 16 - Box 39 - 602 Akureyri - Sími. 462 4958 - info@myndak.is - www.myndak.is