Fréttablaðið - 03.06.2009, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 03.06.2009, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Kolbeins Óttarssonar Proppé Í dag er miðvikudagurinn 3. júní, 154. dagur ársins. 3.18 13.26 23.36 2.26 13.11 23.59 Opið 07 til 01 Lyfja Lágmúla - Lifið heil www.lyfja.is Nú er sú sérkennilega staða uppi á Fróni að íbúarnir eru til- búnir að taka á sig auknar byrðar, borga stærri hluta af naumt skömmtuðu ráðstöfunarfé sínu og þiggja minni þjónustu fyrir það sem þeir greiða til samfélagsins. Hins vegar stendur á stjórnvöldum að bregðast við þessu og koma til móts við þegna sína. ENGINN skyldi halda að auð- velt verk bíði þeirra sem nú halda um stjórnartaumana. Það verður hins vegar að játast að nokkuð er til í gagnrýni á stjórnvöld. Þjóð- in fær enn engar upplýsingar um hvernig reikningurinn fyrir sukk- veisluna miklu verður greiddur. Menn vita ekki hvort eða hvern- ig tekju skattur verður hækkaður og allra síst hvenær. Forsætisráð- herra hefur talað um að slíkt sé ekki hægt að gera nema um ára- mót. Einhvern veginn hélt maður að nauðsyn bryti öll lög; það sama ætti ekki við eftir samfélagshrun og á venjulegu skattaári. EKKERT fer eins illa með sál- ina í fólki og helber óvissan. Fyrstu ráðleggingar sem öllum í fjárhagserfið leikum eru gefn- ar eru að setja öll spilin á borðið, tína til allar skuldir og teikna upp möguleikana á að greiða þær niður og hve langan tíma það muni taka. Þá er komið ákveðið verkefni sem þarf að takast á við; vissulega erf- itt, en þó afmarkað verkefni sem sér fyrir endann á. STJÓRNVÖLD láta hins vegar enn eins og það sé þeirra einka- mál hvernig ná á í milljarðatugi á næstu mánuðum. Við fáum reglu- lega að heyra hve ofsalega erfitt verkefnið sé; erfiðustu ákvarðan- ir sem ráðamenn hafi tekið. Okkur kemur það ekkert við. Enginn efast um álagið á stjórnvöldin en betra væri ef ráðamenn hættu að barma sér yfir því og legðu spilin á borð- ið. Sýndu okkur stöðuna. Þá gætum við tekið þátt í umræðu um hvern- ig við komum okkur út úr vandan- um. Umræðustjórnmál er tískuorð sem mörgum þeim sem nú stýra fleyinu hefur verið tamt að nota. Og nú er þjóðin alveg til í umræðu um hvernig staðan er, þegar hillir undir ársafmæli hrunsins. ROTTWEILER hundarnir sungu um veislu sem þeir héldu og töldu upp þá sem ekki fengu að vera með. „Þér er ekki boðið!“ Efna- hagsviðreisnin er vissulega engin veisla, en við viljum þó gjarnan taka þátt í henni. Það þarf bara að bjóða okkur. Þér er ekki boðið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.