Fréttablaðið - 03.06.2009, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 03.06.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 „Í nokkur ár hef ég fundið ein-hverja leið sem mér finnst hæfi-leg og spennandi í Mið- eða Suður-Evrópu og farið út með hópa í samstarfi við Bændaferðir,“ segir Þórður Höskuldsson, framkvæmda-stjóri Outcome hugbúnaðar, en hann tekur að sér hjólaleiðsögn í eina til tvær vikur á sumrin.„Ferðirnar eru yfirleitt um viku langar og taka mið af fósem í En hvar hefur verið skemmtileg-ast að hjóla? „Hver ferð hefur sinn sjarma en í Dólómítunum og nyrst á Ítalíu hefur landslagið verið stór-brotnast og veðrið hvað best. Þó er líka víða fallegt í Austurríki,“ segir Þórður. Inntur eftir því hvort hann hafi lent í hremmingum á ferðum sínum svarar hann: „Þær hafa veriðí lágmarki e í næstu ferð verður vegalengdin um 80 til 100 kílómetrar á dag,“ segir Þórður. Hann leggur af stað á morgun með tíu manna hóp til Kaupmannahafnar og er stefnan að hjóla til Berlínar í Þýskalandi. „Ég horfi á þetta sem fyrsta legginn áleið yfir Evrópu “ u lý Hefur hjólað þúsundir kílómetra í EvrópuÞórður Höskuldsson, framkvæmdastjóri Outcome, starfar sem hjólaleiðsögumaður í hjáverkum. Á hverju sumri skipuleggur hann eina til tvær hjólaferðir um Evrópu í samstarfi við Bændaferðir. Þórður leiðir hópinn á hjólaferð um Ítalíu. MYND/ÚR EINKASAFNI KAJAKFERÐIR eru meðal þess sem boðið er upp á í Mjóafirði í Ísafjarðar- djúpi. Er um tvenns konar ferðir að ræða sem eru mislangar. Í þeirri lengri er róið að Látrum framhjá Selalátri og endað í Hörgshlíðarpotti. Í þeirri styttri er róið frá Heydal og inn að Hörgshlíðarpotti. Sjá www.vesturferdir.is. skólar og námskeið MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 2009 Connect with English Sumarnámskeið / Summer Courses www.connectwithenglish.is MIÐVIKUDAGUR 3. júní 2009 — 130. tölublað — 9. árgangur ÞÓRÐUR HÖSKULDSSON Hjólar um Evrópu á hverju sumri • ferðir Í MIÐJU BLAÐSINS SKÓLAR OG NÁMSKEIÐ Námslán, skiptinám og stúdentaíbúðir Sérblað um skóla og námskeið FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG Hjálmur bjarg- aði Hjálmi Sigurður Guð- mundsson lenti í árekstri á mótor- hjóli sínu. FÓLK 26 Felldi tár þegar hann kvaddi Ólafur Stefáns- son lék sinn síðasta leik með Ciudad Real og kvaddi félagið sem Evrópumeistari. ÍÞRÓTTIR 22 VEÐRIÐ Í DAG Sýnir á sér nýja hlið Elín Ósk Óskarsdóttir sópr- an fetar ótroðnar slóðir á tónleikum í kvöld. TÍMAMÓT 16 Stórtónleikar færðir Dúndurfréttir og vinir verða á Nasa. FÓLK 20 VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR Gerir mynd um hjólhýsalíf Hjólhýsahverfi rís í Heiðmörk FÓLK 26 HÆGVIÐRI Í dag verður hæg breytileg átt og víða bjart veður. Þykknar upp sunnan og vestan til þegar líður á daginn og hætt við lítilsháttar vætu. Hiti 10-18 stig, hlýjast á Suðausturlandi. VEÐUR 4 14 11 14 18 14 STJÓRNMÁL Sendiherra Kína á Íslandi, Zhang Keyuan, hefur verið kallaður heim. Ekki fengust skýringar á því athæfi kínverskra stjórnvalda í gærkvöldi en sendi- herrann hefur starfað hér í tæp tvö ár. Sendiherrann gekk í gærmorgun á fund ráðuneytisstjóra utanríkis- ráðuneytisins og kom á framfæri óánægju kínverskra stjórnvalda og sendiráðsins með fundi íslenskra ráðamanna með Dalai Lama, leið- toga Tíbeta. Koma Dalai Lama til landsins hefur vakið spennu og óróa innan íslenska stjórnkerfisins. Kínverjar mótmæla jafnan harðlega ef erlendir ráðamenn hitta Dalai Lama að máli. Heimildir Frétta- blaðsins herma að stjórnvöld hafi í raun verið hálf ráðalaus vegna komu hans og vart vitað í hvorn fótinn þau ættu að stíga. Einn heimildarmaður orðaði það svo að komur erlendra gesta væru alla jafna þægilegri við að eiga. Fjórir íslenskir ráðherrar hittu Dalai Lama í gær og fyrradag: Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráð- herra og Ögmundur Jónasson heil- brigðisráðherra á stuttum fundi í gær og Árni Páll Árnason félags- málaráðherra og Svandís Svavars- dóttir umhverfisráðherra við trúar samkomu í Hallgrímskirkju á mánudag. Þá hitti hann dágóðan hóp alþingismanna í gær, meðal ann- ars forseta Alþingis og nefndar- menn í utanríkismálanefnd. Hvorki forsætis- né utanríkis- ráðherra hittu Dalai Lama. Utan- ríkisráðherra er á Möltu en ekki fengust skýringar á hvers vegna forsætisráðherra hitti hann ekki. Steingrímur J. Sigfússon fjármála- ráðherra sagði eftir ríkisstjórnar- fund í gærmorgun að forsætisráð- herra væri úti á landi. Sjálfur taldi hann Dalai Lama eiga við sig lítið erindi enda hefði hann varla áhuga á íslenskum efnahagsmálum. Ólafur Ragnar Grímsson er viðstaddur Smáþjóðaleikana sem settir voru á Kýpur á mánudags- kvöld. Hann hélt utan á sunnudag – sama dag og Dalai Lama kom til landsins – en daginn áður átti hann fund með fyrrverandi sendi- herra Kína á Íslandi. Samkvæmt upplýsingum forsetaritara réð til- viljun réði því að forsetinn fundaði með sendiherranum fyrrverandi um það bil sem Dalai Lama kom til landsins og var ekki rætt um mál- efni Tíbets á fundi þeirra. - bþs / sjá síðu 6 Sendiherrann kallaður heim Forseti Íslands hitti fyrrverandi sendiherra Kína um helgina. Koma Dalai Lama olli óróa í íslensku stjórn- kerfi. Kínverjar hafa kallað sendiherra sinn heim. EFNAHAGSMÁL Skuggabankastjórn Markaðarins hefur áhyggjur af dýpt efnahagsráðgjafar Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins (AGS) og telur varnaðarorð sjóðsins um að ekki beri að lækka stýrivexti ekki stand- ast skoðun, og einkennist meira af pólitík en hagfræði. Mat skuggabankastjórnarinnar er að með afstöðu sinni til ákvörð- unar um stýrivexti vilji Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn þrýsta á um að stjórnvöld ljúki verkum sem dreg- ist hafi fram úr hófi, svo sem að ljúka við áætlun ríkisfjármála og uppgjör milli nýju og gömlu bank- anna. Varhugavert sé hins vegar fyrir sjóðinn að nota ágreining um stýrivexti til að þrýsta á stjórnvöld, fremur en að tala hreint út um hvar honum þyki pottur brotinn. „Stýri- vextirnir eru hættulegt vopn, sem getur snúist í höndum manna,“ segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar. Skuggabankastjórnin leggur til að stýrivextir verði lækkaðir úr 13 prósentustigum í 10,5 prósentu- stig. Með því yrði haldið í yfirlýsta stefnu um skarpt lækkunarferli sem var kynnt í maíbyrjun. Næsta ákvörðun nefndarinnar verður kynnt á morgun. - óká / sjá Markaðinn Skuggabankastjórnin segir hagfræði AGS ekki standast skoðun: Vaxtastefna AGS er pólitísk URÐ OG GRJÓT, NIÐUR Í MÓT Sigurður Ó. Sigurðsson tók sig vel út þar sem hann sýndi reiðhjólalistir sínar í blíðskaparveðri í Þórsmörk. Þeir sem tök hafa á geta lík- lega gert margt vitlausara en að elta góða veðrið uppi þessa dagana, og ekki er verra ef fákur er með í för. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM KJARAMÁL „Við hjökkum í sama flaginu,“ segir Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um gang mála í stöðugleikavið- ræðum samtakanna við Alþýðusamband Íslands og opinbera aðila. Rætt var við fulltrúa sveitarfélaga og forystumenn ríkisstjórnar í gær. Vil- hjálmur segist hafa lagt áherslu á að fjárlagahallanum yrði náð hraðar niður og fjárhagsáætlanir gerðar til þriggja ára. Einnig hafi verið talað um aðkomu lífeyrissjóða að atvinnulífinu. Beðið sé ákvörðunar Seðla- bankans á föstudag um stýrivexti. „Ef við fáum ekki umtalsverða vaxta- lækkun þýðir ekkert að tala um launahækkanir,“ segir Vilhjálmur. - gar Framkvæmdastjóri SA um launahækkanir: Vaxtalækkun forsendan

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.