Fréttablaðið - 30.05.2009, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 30.05.2009, Blaðsíða 28
28 30. maí 2009 LAUGARDAGUR PERU- OG APPELSÍNUSALAT MEÐ HVÍTLAUKSGRASI OG FÍFLABLÖÐUM U m miðjan júní verða námskeið í Heiðmörk í samvinnu við Skóg- ræktarfélag Reykjavík- ur þar sem þær Hildur og Kristbjörg kenna eitt og annað í tínslu og meðferð gróðurs. Námskeiðið stendur í eina helgi en hist verður við Elliðavatn og haldið í leiðangur um grænar grundir, kennt að greina jurtir, tínt, matreitt og olíur gerðar. Skyndigarður fyrir þá sem eru seinir Mikill áhugi er á ræktun og nýt- ingu plantna um þessar mundir. Margir stoppa og hugsa með sér að útfærsla ræktunar sé ægilega flókin. Hildur segir svo ekki vera og við byrjum á því að ræða hvern- ig hægt er að fá sér „skyndigarð“ ef maður á engan nú þegar og langar í gulrætur eða eitthvert annað græn- meti úr eigin smiðju. Hildur bendir einnig á heima- síðuna nattura.is þar sem hún hefur verið að vinna með Guðrúnu Tryggvadóttur að teikningum og leiðbeiningum fyrir fólk sem er að byrja. „Skyndigarður er amer- ísk hugmynd en ég veit um nokkra sem hafa prófað þetta hérlendis og það hefur borið góðan árang- ur. Þetta snýst um að fá sér ramma úr kannski sex til átta tommu við, einn metri á kant, og setja hann á jörðina. Hornin er síðan gott að hefta saman með gúmmípjötlu sem til er á heimilinu, en gamalt stígvél eða slanga koma þar sterklega til greina. Í botninn seturðu dagblöð og fyllir svo með mold. Þá er maður kominn með garðinn. Við lifum á tímum þegar maður þarf að hafa svolítið hraðar hendur.“ Kennt að tína og þurrka Kristbjörg segist ætla að fara að ráðum Hildar, sem segir að inni á nattura.is séu leiðbeiningar um hversu langt bil milli raða eigi að vera og svo hversu mikið komist ofan í. Garðurinn á internetinu er svo skreyttur fallegum teikning- um. Námskeiðið sem þær Hildur og Kristbjörg verða með kallast Jurta- veisla með Hildi og Kristbjörgu. Báðar eru hálfgerð átrúnaðargoð margra í þessum málum. Hildur hefur skrifað bækur svo sem Ætigarðinn, sem notið hefur mikilla vinsælda, þar sem hún fræðir fólk um ræktun og mat- reiðslu grænmetis og kennir því jafnvel að matreiða úr fíflum. Kristbjörg var lífrænt ræktandi bóndi í tuttugu ár og er fyrir löngu kunn fyrir blómadropana sína. Undirtitill námskeiðsins er: Hag- nýt og huglæg ráð til að nýta gróð- ur. „Ég mun sjá um hlutann sem snýr að því að tína jurtir, þurrka og geyma og hvernig blanda megi þeim saman. Einnig að búa til te, seyði, tintúrur og olíur,“ segir Kristbjörg. Í tintúrur notar Krist- björg hreint brennivín og blandar saman við jurtir og býr til úr því meðöl. Þessa dagana er hún til dæmis að gera tintúru úr hoffífli fyrir barna- barnið sitt sem er með barnaastma. Tintúran fer þá út í volgt vatn og áfengið gufar upp. Flókin garðyrkja gerð einföld Hildur segir að í garðyrkju sé gott að notast við nokkrar þumalputta- reglur til að gera flókna garðyrkju einfalda. Sjálf hefur hún nokkrar. „Ein viðmiðunin er til dæmis sú að mjúkir plöntuhlutar eru not- aðir fyrir te en ef þeir eru harðir eins og harðir stönglar, rætur eða fræ eru þeir notaðir í seyði, það er að segja eru soðnar í potti. Það er kynngimagnað,“ segir Hildur og hlær. „Eins leggjum við mjúka plöntuhluta í olíur en ef þeir eru harðir dugar ekkert nema sterkt brennt vín til að ná kraftinum úr.“ Kristbjörg segir íslenskar jurt- ir margar með mikinn lækninga- mátt. Á námskeiðinu verður kennt að gera olíur og útskýrt hvaða jurt- ir eru góðar í þær. „Sem dæmi má nefna að blágresi og birkilauf eru mjög góð í olíu. Blóðberg er líka gott í olíu, en þar sem það er harð- ara þarf það að vera aðeins lengur í olíunni.“ Íslensku jurtirnar kröftugar Jurtirnar íslensku hafa meiri lækn- ingamátt og eru kraftmeiri en þær erlendu að sögn Hildar og Krist- bjargar. „Alexander Bjarnason greindi íslensku jurtirnar á nítj- ándu öld og komst að þeirri nið- urstöðu að augljóst væri að mikið væri af styrkjandi jurtum hérna á landinu. Ein trú er þannig að jurt- ir sem fólk þurfi á að halda komi til þess. Ef einhver jurt birtist í garðinum hjá þér – sem þú jafnvel telur illgresi – er gott að fletta upp í góðum bókum og athuga hvort það geti verið að þessi jurt sé að koma sérstaklega til þín. En ef við erum að tala um alla íslensku þjóðina má spyrja sig – getur verið að í gegnum tíðina höfum við þurft jurtir sem eru styrkjandi? Ég geri ráð fyrir að allir myndu jánka því. Það var nákvæmlega það sem við þurftum, læknislaus í kulda,“ segir Hildur. Þjóðin fær jurtir sem hún þarf Kristbjörg minnist á fyrsta vor- gróðurinn. „Það má benda á að á vorin vaxa hér fyrst fíflablöð og hundasúra. Fíflablöðin hjálpa nýrunum að hreinsa líkamann og hundasúran vinnur fyrir lifrina. Ræturnar af fíflunum eru einnig mjög góðar fyrir lifrina. Eftir veturinn er fólk búið að vera meira inni og við erum búin að borða óhollara, þannig að þessar plöntur sem vaxa fyrst eru yfirleitt þær jurtir sem við þurfum. Og eins og Hildur segir eru jurtirnar sem vaxa á Íslandi einmitt þær jurtir sem við þurfum á að halda.“ Krist- björg segist tína nær allt sem hún finni í garðinum sínum í salatið – hundasúrur og fíflablöð. Hildur segir að gott sé að skera stífan stöngulinn af ef blöðin eru mjög stór og nota þau þannig. Fjórir fíflastönglar borðaðir í einu Af nöfnum má líka finna til hvers plöntur eru góðar. Þannig bend- ir Hildur á að allar plöntur sem kenndar séu við Maríu, svo sem Maríustakkur, séu góðar fyrir konur. Kristbjörg segir að lokum að miklu máli skipti hvernig jurtir séu tíndar og á námskeiðinu 13. og 14. júní muni þær fara út í hvernig megi geyma jurtir sem best. Einnig fari þær yfir hvenær best sé að tína þær en það er mjög mismunandi eftir jurtum. Þar er vorið og haustið allsráðandi. Kristbjörg hvetur fólk til að vera með ruslapoka um leið og það er með safnpoka þegar það fer út í náttúruna að tína. „Ruslapok- inn er að sjálfsögðu til að tína upp það rusl sem fólk finnur úti í nátt- úrunni,“ segir Hildur. Að lokum spyr blaðamaður hvort hægt sé að borða fíflastöngul? Hild- ur segir að það sé hægt, með því að borða fjóra í einu og byrja ofan frá. „Þá verður ramma bragðið að sætu, einhverra hluta vegna.“ Áhugasömum um námskeið Krist- bjargar og Hildar er bent á að skrá sig í síma 861 1373 og 849 8467. Fíflablöð í salöt og djúp- steiktir blómahausar Þær Hildur Hákonardóttir og Kristbjörg Kristmundsdóttir þekkja báðar villta flóru Íslands – önnur þeirra kann að nýta hið mögulega og að því er virðist ómögulega í matargerð og hin gerir olíur, seyði og te úr þeim. Júlía Margrét Alexandersdóttir hitti þær jurtastöllur og fékk smá innsýn inn í hvað gera má við fífla og birkilauf. LEGGJA SAMAN KRAFTA SÍNA Hildur Hákonardóttir og Kristbjörg Kristmundsdóttir kalla ekki allt ömmu sína í gróðurfræðum landsins. Þær sameina krafta sína í Heiðmörk þarnæstu helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ➜ MATREITT ÚR FÍFLUM Fíflablöð eru mest notuð hrá í salat en sé hörgull á öðru grænu eru þau soðin í súpum og höfð í pottrétti. Blöðin má leggja í vatn í nokkrar mín- útur áður en þau eru sett í pott, það dregur úr remmu. Blaðstöngullinn er beiskari en laufið sjálft og það grófasta af honum má rífa burt, hafi maður tíma til þess. Best er að leggja blaðið saman svo stöngullinn snúi upp eins og kjölur á skipi og byrja við miðjuna og strjúka blaðið frá stönglin- um til beggja enda, þá vinnst verkið tiltölulega hratt. Fíflablöð verða ekki leiðigjörn. Þau eru góð matjurt og hægt að nota þau með salatblöðum út júnímánuð og áfram, ef fíflarnir hafa verið slegnir og vaxið upp á ný. Það er vel skiljanlegt að franskir sjómenn, langþreyttir á vítamínskorti á skonn- ortunum, hafi bókstaflega ætt upp um móa, þegar þeir komust í land til að leita uppi fíflablöð, enda nota Frakkar mikið af sjálfgrónum plöntum til matar heimafyrir. Þjóðverjar kalla fíflablöð engjasalat. Eftir Skaftáreldana ráðlagði þáverandi stiftamtmaður Thodal, sem var norskur og þekkti vel til búskapar og jurta, mönnum að nota fífilinn bæði í grauta og í salat til að vinna bug á skyrbjúg og fleiri kvillum og segir að hann hafi reynst vel, jafnvel betur en skarfakálið. „Hefir brúkun þess (fífilsins) og síðan haldizt við, þó helzt hjá þeim efnaðri í salati.” Djúpsteiktir fíflahausar Blómhausinn má taka eins og hann kemur fyrir með blómbotninum á, dýfa í soppu og djúpsteikja í olíu. Soppu má gera með því að hræra hveiti út í ögn af mjólk og hafa egg með, eins og þegar pönnukökudeig er búið til. Ef eggjahvítan er þeytt verður soppan frauðmeiri. Svo má hræra hveiti út í bjór, sem er staðinn svo hann freyði ekki lengur. Á sama máta má djúpsteikja kerfilblóm en þau eru ekki eins bragðmikil. (Úr bók Hildar Hákonardóttir, Ætigarðurinn – Handbók grasnytjungsins) Hvítlauksgras hefur blaðamaður ræktað síðan í vor. Til að byrja með stakk undirrituð hvítlauk sem hún keypti úti í búð og lét hann spíra í eldhúsglugganum. Þegar fagurgrænt grasið var farið að láta sjá sig var lauknum stungið niður í blómapott með mold í og grasið láta snúa upp á við. Síðan þá hefur grasið vaxið vel og hægt er að klippa af því grasið, ekki þó alveg niður, og nota í salöt, fisk- og kjúklingarétti og ýmislegt. Grasið þykir mörgum jafnvel bragðbetra en hvítlaukurinn sjálfur. Hér er uppskrift að ávaxtasalati þar sem grasið er notað ásamt fíflablöðum: 4 perur 2 appelsínur hvítlauksgras eftir smekk nokkur fíflablöð jómfrúarolía sjávarsalt balsamiksíróp ef vill Sneiðið perur niður örþunnt. Afhýðið appelsínurnar og skerið aldinkjötið í litla bita. Klippið hvítlauksgrasið í litla búta sem og fíflablöðin. Hellið jómfrúarolíu yfir og stráið smá sjáv- arsalti að lokum yfir allt saman. Fyrir sælkera er gott að setja nokkra dropa af balsamiksírópi yfir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.